Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1203/2006

Nr. 1203/2006 21. desember 2006
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Grundarfjarðarbæ.

Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjarráð Grundarfjarðarbæjar samþykkt þann 21. desember 2006 tillögu að deili­skipulagi fyrir Grundargötu 38, Grundarfirði.
Tillagan var auglýst skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 frá og með 30. ágúst 2006 til og með 27. september 2006 með athugasemdafresti til 11. október 2006.
Í tillögunni er komið til móts við framkomnar athugasemdir um að fjarlægð byggingar­reits frá götu (Eyrarvegi) verði hvergi minni en 8 m.
Greinargerð og uppdráttur hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um. Deiliskipulagið er sett fram í mkv. 1:500 skv. uppdrætti dags. 7. desember 2006.
Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

Grundarfirði, 21. desember 2006.

Hjörtur Hans Kolsöe, skipulags- og byggingarfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 8. febrúar 2007