Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 601/2015

Nr. 601/2015 3. júlí 2015

REGLUGERÐ
um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta skv. 1. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

1. gr.

Þar sem takmarkaðar innfjarðarækjuveiðar voru stundaðar í Arnarfirði og engar innfjarða­rækjuveiðar voru stundaðar á Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfanda, Öxarfirði og norðurfjörðum Breiðafjarðar á fiskveiðiárinu 2014/2015, skal á fiskveiðiárinu 2015/2016 úthluta aflamarki sem nemur samtals 601 þorskígildislestum til báta, sem hafa hlutdeild í innfjarðarækju á áðurgreindum svæðum.

Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla rækjuvertíðanna 1996/1997 - 2005/2006 að frádregnum afla í innfjarðarrækju fiskveiði­ársins 2014/2015 á viðkomandi svæði, nema á Eldeyjarsvæði skal miða við alman­aks­árið 2014. Verðmætastuðullinn fyrir rækju er 0,52, miðað við þorskígildi og koma 15 þorsk­ígildislestir í hlut báta frá Arnarfirði, 148 þorskígildislestir í hlut báta við Húnaflóa, 153 þorsk­ígildislestir í hlut báta við Skagafjörð, 70 þorskígildislestir í hlut báta á Skjálfanda, 201 þorsk­ígildislest í hlut báta við Öxarfjörð og 14 þorskígildislestir í hlut báts í norður­fjörðum Breiðafjarðar.

2. gr.

Þar sem engar hörpudisksveiðar voru stundaðar í Arnarfirði, Húnaflóa, Breiðafirði og Hval­firði á fiskveiðárinu 2014/2015 skal á fiskveiðiárinu 2015/2016 úthluta aflamarki sem samtals nemur 983 þorskígildislestum til báta, sem aflahlutdeild hafa í hörpudiski á áður­greindum svæðum.

Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla áranna 1998 til 2007. Verðmætastuðullinn fyrir hörpudisk er 0,32, miðað við þorskígildi, og koma 7 þorskígildislestir í hlut báta frá Arnarfirði, 33 þorskígildislestir í hlut báta við Húna­flóa, 919 þorskígildislestir í hlut báta við Breiðafjörð og 24 þorskígildislestir í hlut báta við Hval­fjörð.

3. gr.

Úthluta skal uppbótum til einstakra báta á grundvelli þeirrar aflahlutdeildar sem þeir hafa í rækju og skel á viðkomandi svæði og miðast við aflahlutdeild eins og hún er 1. ágúst 2015. Uppbæturnar skulu skiptast á eftirgreindar tegundir: Þorsk, ýsu, ufsa og steinbít, í hlutfalli við leyfilegt heildarmagn í þessum tegundum.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 3. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. september 2015.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. júlí 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Hinrik Greipsson.


B deild - Útgáfud.: 6. júlí 2015