Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 78/2010

Nr. 78/2010 11. janúar 2010
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um reikning fyrninga og vaxta vegna fjármögnunarleigu fólksbifreiða, skv. 4. tölul. 50. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Útreikningur frádráttarbærs hluta leigugreiðslna rekstrarárið 2009 vegna fjármögnunar­leigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 menn, þó að undanskildum leigubifreiðum, skal vera sem hér segir:

  1. Fyrningargrunnur telst vera kaupverð bifreiðar eins og það er ákveðið við kaup leigusala (fjármögnunarleigufyrirtækis) á viðkomandi bifreið að frádregnum áður fengnum fyrningum.
  2. Til frádráttar hjá leigutaka á rekstrarárinu 2009 telst 20% fyrning af fyrningargrunni skv. 1. tölul. hér að framan, að viðbættum 14,1% vöxtum reiknuðum hlutfallslega miðað við upphaf eða lok leigutíma á árinu 2009. Vextir reiknast af fyrningargrunni.
  3. Fyrning skv. 2. tölul. hér að framan er heimil að fullu rekstrarárið 2009, hvort sem leigutímabilið hefst eða því lýkur á því ári.

    Reykjavík, 11. janúar 2010.

    Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

    B deild - Útgáfud.: 1. febrúar 2010