Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 21/2014

Nr. 21/2014 6. janúar 2014
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2014.

Eignamat í árslok.

Samkvæmt 2. tölul. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður sbr. framangreint.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2013, álagningarárið 2014, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:

  

kr.    

Mjólkurkýr

 

111.000

Holdakýr og naut

 

97.000

Kvígur, 1 1/2 árs og eldri

 

71.000

Geldneyti

 

50.000

Kálfar, yngri en 1/2 árs

 

12.500

Ær og sauðir

 

7.600

Hrútar

 

12.100

Gemlingar

 

6.800

Geitur

 

3.800

Hross á 14. vetri og eldri

 

17.000

Hross á 5. – 13. vetri

 

34.000

Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri

 

140.000

Önnur nýtanleg reiðhross

 

70.000

Verðlaunahross á 5. – 13. vetri

 

200.000

Kynbótahestar á 5. – 13. vetri

 

280.000

Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri

 

380.000

Tryppi á 2. – 4. vetri

 

11.000

Folöld

 

8.000

Hænsni, eldri en 6 mánaða

 

890

Varphænsni 6 mánaða og yngri

 

570

Kjúklingar

 

220

Endur

 

800

Gæsir

 

1.560

Kalkúnar

 

2.320

Gyltur

 

35.000

Geltir

 

52.000

Grísir

 

7.700

Kanínur

 

3.000

Minkar:

Karldýr

7.500

 

Kvendýr

5.000

 

Hvolpar

0

Refir:

Karldýr og kvendýr

6.000

 

Hvolpar

0

Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri

 

3.800

Reykjavík, 6. janúar 2014.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 20. janúar 2014