Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 924/2008

Nr. 924/2008 19. ágúst 2008
SAMÞYKKT
um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

I. KAFLI

Um skipan sveitarstjórnar.

1. gr.

Skipan sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Skagafjarðar er skipuð níu sveitarstjórnarfulltrúum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. einnig 8. og 12. gr. sveitarstjórnar­laga nr. 45/1998.

2. gr.

Starfstímabil.

Starfstímabil sveitarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.

3. gr.

Verkefni sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn fer með stjórn sveitarfélagsins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer sveitarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem sveitarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.

Sveitarstjórn skal gæta hagsmuna sveitarfélagsins, vera í fyrirsvari fyrir það og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin með lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur sveitarstjórn ákveðið að sveitarfélagið taki að sér verkefni sem varðar íbúana sérstaklega, enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.

4. gr.

Önnur verkefni.

Meðal verkefna sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar er:

  1. Að kjósa forseta og varaforseta sveitarstjórnar, byggðarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. IV. kafla sveitarstjórnarlaga og IV. kafla samþykktar þessarar og skoðunarmenn til að annast endurskoðun ársreikninga sveitarfélagsins skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga.
  2. Að setja samþykktir og gjaldskrár eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  3. Að stjórna fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga og VI. kafla samþykktar þessarar.
  4. Að ákveða stjórnkerfi sveitarfélagsins og ráða sveitarstjóra og helstu starfsmenn sveitarfélagsins skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga og V. kafla þessarar samþykktar.
  5. Að upplýsa íbúa sveitarfélagsins um störf sveitarstjórnar og málefni sveitar­félagsins, svo sem með vefsíðu, útgáfu fréttabréfs og bæklinga og almennum borgarafundum. Þá skulu íbúar eiga þess kost að gerast áskrifendur að fundargerðum sveitarstjórnar gegn hæfilegu gjaldi.

II. KAFLI

Um fundarsköp sveitarstjórnar.

5. gr.

Fundartími sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn heldur reglulega fundi tvisvar í mánuði ef mál eru fyrir hendi. Heimilt er að fella niður fundi í sveitarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Skal byggðarráð hafa heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi sveitarstjórnar, enda sé ekki ágreiningur milli byggðarráðsmanna eða sveitarstjóra um slíka afgreiðslu, sbr. 44. gr.

Aukafundi skal halda í sveitarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati sveitarstjóra og forseta sveitarstjórnar og skylt er að halda aukafundi í sveitarstjórn ef a.m.k. þriðjungur sveitarstjórnarfulltrúa krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

6. gr.

Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar.

Sá kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn sem á að baki lengstu setu í sveitarstjórninni kveður hana saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, sbr 2. gr., þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag.

Hafi tveir eða fleiri fulltrúar í sveitarstjórn átt jafnlengi setu í sveitarstjórn fer aldurs­forseti þeirra með fundarboð skv. 1. mgr. Sá sem kveður sveitarstjórn saman til fyrsta fundar getur falið sveitarstjóra að boða fyrsta fund nýkjörinnar sveitarstjórnar.

7. gr.

Boðun sveitarstjórnarfundar.

Sveitarstjóri, sbr. þó 6. gr., boðar sveitarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi sveitarstjórn ekki ákveðið það. Íbúum sveitarfélagsins skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær sveitarstjórnarfundir eru haldnir.

Dagskrá sveitarstjórnarfunda skal vera aðgengileg, svo sem á heimasíðu sveitar­félagsins, á auglýsingatöflum á þéttbýlisstöðum í sveitarfélaginu, á skrifstofu sveitar­félagsins á afgreiðslutíma eða með öðrum hætti sem sveitarstjórn ákveður.

8. gr.

Dagskrá sveitarstjórnarfundar.

Sveitarstjóri semur dagskrá sveitarstjórnarfundar í samráði við forseta sveitarstjórnar og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningar forseta sveitarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarstjórnar svo og kosningar eða ráðningar sveitarstjóra og annarra starfsmanna í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu.
  2. Fundargerðir byggðarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins, sbr. 52. gr.
  3. Önnur mál sem falla undir verksvið sveitarstjórnar og sveitarstjóri ákveður að taka á dagskrá eða einhver sveitarstjórnarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá. Sveitarstjórnarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal tilkynna það sveitarstjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.

Dagskrá sveitarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem sveitarstjóri telur nauðsynleg. Dagskrá skal jafnframt fylgja afrit fundargerðar síðasta sveitarstjórnarfundar.

9. gr.

Hæfi sveitarstjórnarfulltrúa.

Sveitarstjórnarmanni ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.

Sveitarstjórnarmenn eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfs á vegum sveitarstjórnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.

Sveitarstjórnarmenn sem jafnframt eru starfsmenn sveitarfélaga og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir sveitarstjórn eru alltaf vanhæfir þegar sveitarstjórnin fjallar um málið. Ákvæði þetta á þó ekki við um framkvæmdastjóra sveitarfélags.

Ákvæði 3. mgr. á ekki við þegar sveitarstjórn fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélagsins.

Sveitarstjórnarmanni sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli á því. Sveitarstjórnarmanni er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Sveitarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver sveitarstjórnarmanna sé vanhæfur. Sveitarstjórnarmaður sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.

Sveitarstjórnarmaður sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal sveitarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess. Heimilt er að kalla inn varamann hans.

10. gr.

Útsending fundarboða.

Sveitarstjóri skal í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir sveitarstjórnarfund hafa sent sveitarstjórnarfulltrúum og varamönnum fundarboð sveitarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum. Heimilt er að boða fundi með rafrænum hætti.

11. gr.

Boðun aukafunda.

Sveitarstjóri skal boða til aukafundar í sveitarstjórn með dagskrá a.m.k. sólarhring fyrir fund. Heimilt er þó að boða aukafund með styttri fyrirvara ef aðkallandi mál bíður afgreiðslu, enda sé hann boðaður með dagskrá.

12. gr.

Kosning forseta og varaforseta sveitarstjórnar.

Sá sveitarstjórnarmaður sem á að baki lengstu setu í sveitarstjórninni setur fyrsta fund nýkjörinnar sveitarstjórnar og stýrir honum uns forseti sveitarstjórnar hefur verið kjörinn.

Forseti sveitarstjórnar skal kjörinn til eins árs.

Sá er rétt kjörinn forseti sem fengið hefur atkvæði meirihluta fulltrúa í sveitarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda eigi náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri sveitarstjórnarfulltrúar fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá réttkjörinn forseti sveitarstjórnar sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn skal hlutkesti ráða kosningu.

Forseti sveitarstjórnar stjórnar kjöri 1. og 2. varaforseta sveitarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. 3. mgr. Varaforsetar skulu kjörnir til jafnlangs tíma og forseti.

Sé enginn forseta á fundi gegnir aldursforseti forsetastörfum nema sveitarstjórn ákveði að kjósa sérstakan forseta.

Ef forseti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórninni skal hann víkja og forsetakjör fara fram á ný.

Ef forseti deyr eða verður varanlega forfallaður frá forsetastörfum skal kjósa forseta í hans stað til loka kjörtímabils forseta.

13. gr.

Kosning skrifara.

Sveitarstjórn kýs tvo skrifara og tvo til vara úr hópi sveitarstjórnarfulltrúa til eins árs í senn á sama fundi og kosning forseta fer fram. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í sveitarstjórn.

14. gr.

Fundarstaður.

Sveitarstjórnarfundi skal halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir. Sveitarstjórnarfundur skal haldinn í húsnæði sem fullnægir ákvæðum byggingar- og skipulagsreglugerðar um aðgang fatlaðs fólks. Ef þeim ákvæðum er ekki fullnægt skal sveitarstjórn sjá til þess að fatlað fólk fái nauðsynlega aðstoð æski það að hlýða á sveitarstjórnarfund.

Sveitarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt er vegna hagsmuna sveitarfélagsins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur sveitarstjórn ákveðið að sveitarstjórnarfundur þar sem eingöngu er fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðu­laust í sveitarstjórn.

Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í sveitar­stjórn.

15. gr.

Lögmæti sveitarstjórnarfundar.

Sveitarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur sveitarstjórnarfulltrúa er á fundi. Sveitarstjórn getur enga bindandi ályktun gert nema fundur sé lögmætur.

16. gr.

Fundarstjórn.

Forseti sveitarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans og stjórnar umræðum og afgreiðslu mála, sér um að fundargerðir séu færðar og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd.

Forseti úrskurðar um skilning á fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar sveitarstjórnar. Forseti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á sveitarstjórnar­fundum og er sveitarstjórnarfulltrúum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Forseti skal kveðja til varaforseta vilji hann taka þátt í almennum umræðum.

Raski áheyrandi fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal. Leyfi forseta þarf til að utanaðkomandi aðilar fái að taka myndir og hljóðrita umræður á sveitarstjórnar­fundum. Skjóta má ákvörðun forseta til úrlausnar sveitarstjórnar.

17. gr.

Afgreiðsla dagskrármála á fundi.

Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í sveitarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema sveitarstjórn ákveði annað.

Heimilt er að taka til meðferðar á sveitarstjórnarfundi mál sem ekki hefur verið á dagskrá ef 2/3 viðstaddra sveitarstjórnarfulltrúa samþykkja slík afbrigði.

18. gr.

Afgreiðsla mála, tvær umræður.

Sveitarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:

  1. Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
  2. Ársreikning sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
  3. Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
  4. Áætlanir fyrir sveitarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem þriggja ára fjárhagsáætlanir og skipulagsáætlanir.
  5. Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr sveitarstjórnarlaga.

19. gr.

Fundarsókn, varamenn.

Sveitarstjórnarfulltrúa er skylt að sækja alla sveitarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi.

Sé sveitarstjórnarfulltrúi forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföll til sveitarstjóra. Sveitarstjórnarfulltrúi boðar eða lætur sveitarstjóra boða vara­mann á sveitarstjórnarfund. Varamenn taka sæti í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalfulltrúar þess lista sem þeir eru kosnir af falla frá, flytjast í burtu eða forfallast varanlega á annan hátt eða um stundarsakir frá því að sitja í sveitarstjórn. Að öðru leyti vísast til 24. gr sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

Sveitarstjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt, en ekki hefur hann atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn sveitarstjórnarfulltrúi.

Sveitarstjórn getur heimilað að maður utan sveitarstjórnar kveðji sér hljóðs á sveitar­stjórnarfundum.

20. gr.

Málfrelsi á sveitarstjórnarfundi.

Sveitarstjórnarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á sveitarstjórnarfundum. Sveitarstjórnarfulltrúi sem vill taka til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu sveitarstjórnarfulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða sveitarstjóra, framsögumann í máli eða sveitarstjórnar­fulltrúa sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri.

Hafi tveir eða fleiri sveitarstjórnarfulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis ákveður forseti í hvaða röð þeir skuli tala.

Sveitarstjórnarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustóli nema forseti leyfi annað.

21. gr.

Takmarkanir á málfrelsi.

Sveitarstjórnarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta. Þegar til umræðu er fundargerð byggðarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar skal sveitarstjórnarfulltrúi taka fram hvaða lið/liði fundargerðarinnar hann óskar að ræða.

Sveitarstjórnarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó sveitarstjórnarfulltrúa að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd við fundarsköp. Sveitarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður má þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls.

Ef sveitarstjórnarfulltrúi vill beina fyrirspurn til sveitarstjóra skal hann að jafnaði hafa hana skriflega og afhenda hana með sama fyrirvara og um tillögu væri að ræða, sbr 8. gr.

Ekki má sveitarstjórnarfulltrúi lesa upp prentað mál við umræður í sveitarstjórn nema með leyfi forseta.

22. gr.

Fundarsköp, vítur á sveitarstjórnarfulltrúa.

Beri sveitarstjórnarfulltrúi aðra menn brigslum skal forseti víta hann. Forseti getur lagt til við sveitarstjórn að sveitarstjórnarfulltrúi sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist sveitarstjórnarfulltrúi ekki úrskurði forseta eða sveitarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi, skal forseti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur.

23. gr.

Takmarkanir á ræðutíma.

Telji forseti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers sveitarstjórnarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál lokið þá þegar. Hver sveitarstjórnarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Sveitarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver sveitarstjórnarfulltrúi kveður sér hljóðs.

Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.

24. gr.

Meðferð tillagna.

Sveitarstjórnarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef forseti óskar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu.

25. gr.

Afgreiðsla mála.

Mál er afgreitt í sveitarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá sveitarstjórn eða vísa því til afgreiðslu byggðarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar eða sveitarstjóra. Máli sem sveitarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Sveitarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.

26. gr.

Atkvæðagreiðsla.

Atkvæðagreiðsla á sveitarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti biður þá sveitarstjórnarfulltrúa sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæða­greiðslunnar.

Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.

Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur sveitarstjórnarfulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá sveitarstjórnarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða sveitarstjórnarfulltrúi greiðir atkvæði fyrstur við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar sveitarstjórnarfulltrúi þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei, eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæða­greiðslu.

Heimilt er sveitarstjórnarfulltrúa að gera stutta grein fyrir atkvæði sínu.

Afgreiða skal mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef sveitarstjórnarfulltrúi óskar og sveitarstjórn samþykkir.

Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.

27. gr.

Kosningar.

Kosningar sem fara fram í sveitarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d’Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihluta­kosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og forsetakjör. Kosningar skulu vera skriflegar og leynilegar ef einhver sveitarstjórnarfulltrúi óskar þess.

28. gr.

Fundaritun, fundargerð.

Fundargerðir sveitarstjórnarfunda skal rita í gerðabók í samræmi við fundarsköp sveitarstjórnarinnar. Sveitarstjórn er heimilt að ráða sér fundarritara. Forseti skal hafa eftirlit með því að fundargerðir séu skipulega og rétt færðar. Í fundargerð skal skrá hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitja hann. Þá skal skrá í fundargerð einstök mál sem tekin eru fyrir á fundi, dagsetningu þeirra, nöfn aðila, meginefni og hvaða afgreiðslu þau hljóta.

Fundargerðir skulu skráðar í tölvu. Í gerðabók sveitarstjórnar skal skrá númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerðar. Sveitarstjórnarmenn skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók.

Í lok fundar skal tölvuskráð fundargerð lesin upp, prentuð út og hún undirrituð af fundarmönnum nema sveitarstjórn ákveði annað. Einnig skal oddviti og a.m.k. einn fulltrúi hvers framboðs setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð. Sveitarstjórnarfulltrúi sem vill gera athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði.

Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn í fundargerðabók sveitar­stjórnar til varanlegrar varðveislu.

Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi, sbr. 3. mgr. 14. gr., skal skrá sem trúnaðarmál.

Sveitarstjórnarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til máls sem til meðferðar er í sveitarstjórn.

Umræður á sveitarstjórnarfundum skulu hljóðritaðar. Sveitarstjóri skal sjá til þess að fundir séu hljóðritaðir og að hljóðrit séu geymd með tryggilegum hætti. Aðgangur að hljóðritunum sveitarstjórnarfunda er öllum heimill á opnunartíma skrifstofu sveitar­félagsins.

Fundargerðir sveitarstjórnar, ráða og nefnda skulu færðar á heimasíðu sveitarfélagsins að loknum fundi.

III. KAFLI

Um réttindi og skyldur sveitarstjórnarfulltrúa.

29. gr.

Fundarseta.

Sveitarstjórnarfulltrúa er bæði rétt og skylt að sækja fundi sveitarstjórnar nema lögmæt forföll hamli, sbr. 19. gr. Hver sveitarstjórnarfulltrúi er skyldur að taka að sér þau störf sem sveitarstjórn felur honum og varða verkefni sveitarstjórnar, svo sem forsetastörf og störf í byggðarráði eða öðrum nefndum á vegum sveitarstjórnar. Þó getur sá sem verið hefur forseti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í byggðarráði eða annarri nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.

30. gr.

Hagsmunir sveitarfélagsins.

Sveitarstjórnarfulltrúa ber að gegna sveitarstjórnarfulltrúastörfum sínum af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna sveitarfélagsins, en í störfum sínum er sveitarstjórnar­fulltrúi einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.

31. gr.

Málfrelsi, tillöguréttur, atkvæðisréttur.

Sveitarstjórnarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari.

Sveitarstjórnarfulltrúa er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem sveitarstjórn er samkvæmt lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur forseti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur sveitarstjórnarfulltrúa tekur þátt í atkvæðagreiðslunni.

32. gr.

Aðgangur að upplýsingum.

Sveitarstjórnarfulltrúi skal eiga aðgang að bókum, skjölum og öðrum gögnum sveitar­félagsins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum þess á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna.

33. gr.

Þagnarskylda.

Sveitarstjórnarfulltrúi skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- og almannahagsmuna samkvæmt lögum, eðli máls eða sérstakri ákvörðun sveitarstjórnar.

34. gr.

Lausn úr sveitarstjórn.

Nú telur sveitarstjórnarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum sínum í sveitarstjórn án óhæfilegs álags og getur sveitarstjórn þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Verði sveitarstjórnarmaður af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði skal sveitarstjórn veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

35. gr.

Þóknun.

Sveitarstjórnarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn setur reglur skv. 1. mgr. ásamt reglum um ferðakostnað fyrir sveitar­stjórnarfulltrúa og nefndamenn.

36. gr.

Orlof og fundartími.

Haga skal fundum sveitarstjórnar þannig að sveitarstjórnarfulltrúar eigi möguleika á að taka sér orlof árlega, sbr. 5. gr.

37. gr.

Fjarvera vegna veikinda, varamenn.

Varamenn taka sæti í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalfulltrúar þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast um stundarsakir frá því að sitja í sveitarstjórn.

38. gr.

Varamenn.

Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna eiga einnig við um varamenn sem taka sæti í sveitarstjórn.

IV. KAFLI

Byggðarráð, aðrar nefndir og stjórnir.

39. gr.

Kosning í ráð, nefndir og stjórnir.

Sveitarstjórn kýs fulltrúa í ráð, nefndir og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Slíkar kosningar skulu vera leynilegar bundnar hlutfalls­kosningar ef einhver sveitarstjórnarfulltrúi óskar þess. Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélags eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá.

40. gr.

Kosning í byggðarráð.

Sveitarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá fulltrúa í byggðarráð til eins árs og jafnmarga til vara. Aðalfulltrúar í sveitarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn og varamenn í byggðarráð. Hafi framboð sem fær mann kjörinn í byggðarráð aðeins einn aðalmann í sveitarstjórn er þó heimilt að kjósa 1. varamann þess framboðs sem varamann í byggðarráði.

Sveitarstjóri á sæti í byggðarráði með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé sveitarstjórnarfulltrúi og kjörinn í byggðarráð.

Sveitarstjórn getur heimilað flokki eða framboðsaðila sem fulltrúa á í sveitarstjórn en hefur ekki fengið kjörinn byggðarráðsmann að tilnefna fulltrúa til setu í byggðarráði með málfrelsi og tillögurétt.

Skylt er sveitarstjórn að gefa fulltrúum flokks/framboðsaðila sem sæti á í sveitarstjórn kost á setu í byggðarráði með málfrelsi og tillögurétt þann tíma sem fundir sveitar­stjórnar falla niður vegna sumarleyfa, sbr. 44. gr.

41. gr.

Fundartími byggðarráðs.

Byggðarráð skal að jafnaði halda fundi vikulega. Aukafundi skal halda ef sveitarstjóri, formaður byggðarráðs eða a.m.k. tveir byggðarráðsmenn óska þess enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

42. gr.

Undirbúningur og boðun byggðarráðsfunda.

Sveitarstjóri undirbýr byggðarráðsfundi í samráði við formann byggðarráðs. Hann sér um að byggðarráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund.

Geti byggðarráðsmaður ekki sótt fund skal hann boða eða láta sveitarstjóra boða varamann á fund.

Geti hvorki aðalmaður eða varamaður sótt fundi í byggðarráði er þeim kjörna fulltrúa af sama framboðslista heimilt að taka sæti í byggðarráði í þeirri röð sem þeir voru kjörnir, þrátt fyrir ákvæði 40. gr. um kjörgengi í byggðarráð.

43. gr.

Kosning formanns og varaformanns byggðarráðs.

Á fyrsta fundi nýkjörins byggðarráðs skal kjósa formann og varaformann byggðarráðs. Formaður skal valinn úr hópi kjörinna byggðarráðsmanna. Formaður byggðarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar byggðarráðs.

44. gr.

Byggðarráð.

Byggðarráð fer ásamt sveitarstjóra með framkvæmdastjórn sveitarfélagsins og fjármálastjórn að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Byggðarráð hefur umsjón með stjórnsýslu sveitarfélagsins, undirbúningi árlegrar fjárhagsáætlunar, semur drög að fjárhagsáætlun sveitarsjóðs og fyrirtækja sveitarfélagsins að fengnum tillögum hlutaðeigandi stjórna, ráða og nefnda og leggur þau fyrir sveitarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Þá sér byggðarráðið um að ársreikningar sveitarsjóðs séu samdir og þeir, ásamt ársreikningum stofnana sveitarfélagsins, lagðir fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um. Byggðarráð fer með málefni eignasjóðs.

Formaður byggðarráðs tekur ákvörðun um hvaða mál frá nefndum þurfi umfjöllunar við í byggðarráði áður en þau eru lögð fyrir sveitarstjórn, sbr. þó 3. mgr. 52. gr.

Byggðarráð gerir tillögur til sveitarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Í sumarleyfi sveitarstjórnar er byggðarráði þó heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag sveitarsjóðs eða stofnana hans, sbr. 5. gr., enda sé ekki ágreiningur milli byggðarráðsmanna eða við sveitarstjóra um slíka afgreiðslu.

Heimilt er að taka mál til meðferðar í byggðarráði þó ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver byggðarráðsmaður óskar þess.

Byggðarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka samkvæmt fjárhagsáætlun, svo sem til gatnagerðar, nýbygginga og óvissra útgjalda.

Þá getur sveitarstjórn falið byggðarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg.

Um ritun fundargerða gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnar.

Heimilt er að bóka afgreiðslur viðkvæmra mála í sérstaka trúnaðarbók.

45. gr.

Starfsmenn á fundi byggðarráðs.

Skylt er starfsmönnum sveitarfélagsins að sitja fundi byggðarráðs ef þess er óskað.

46. gr.

Boðun nefndarfunda.

Sveitarstjóri boðar nefndir saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það. Á þeim fundi skal kjósa formann, varaformann og ritara nefndar nema ákvörðun sveitar­stjórnar eða lög kveði á um annað.

Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. sólarhrings fyrirvara. Heimilt er þó að boða til fundar með styttri fyrirvara ef brýna nauðsyn ber til.

Fundir skulu boðaðir með dagskrá.

47. gr.

Fundarseta.

Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal varamaður hans taka sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr sveitarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema sveitarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju.

Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá er tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

48. gr.

Lokaðir fundir.

Nefndarfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn sveitarfélagsins. Enn fremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.

49. gr.

Fundarstjórn.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.

50. gr.

Hlutverk og valdsvið ráða, stjórna og nefnda.

Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið sveitarstjórn.

51. gr.

Fundargerðarbækur.

Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari nefndar skal færa fundargerð í tölvu eða gerðabók. Nefnd getur þó ráðið sér fundarritara utan nefndar. Í fundargerð skal skrá hvar og hvenær fundurinn er haldinn og hverjir sitja hann. Þá skal skrá í fundargerð einstök mál sem tekin eru fyrir á fundi, dagsetningu þeirra, nöfn aðila, meginefni og hvaða afgreiðslu þau hljóta. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnar, sbr. 28. gr., eftir því sem við á.

52. gr.

Afgreiðsla fundargerða nefnda, ráða og stjórna.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna sveitarfélagsins skulu teknar á dagskrá sveitar­stjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi.

Fundargerðir sem innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar stað­festingar byggðarráðs og sveitarstjórnar eru lagðar fram til kynningar

Ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar sem hefur í för með sér aukin útgjöld eða tekjur umfram áður veittar heimildir skal ætíð lögð fyrir byggðarráð og síðan sveitarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.

53. gr.

Nefndir, ráð og stjórnir. Tilnefningar og kosningar.

Sveitarstjórn kýs í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir:

A. Til eins árs. Á fundi í júní ár hvert:

  1. Forseti sveitarstjórnar. Kjörinn skv. 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
  2. Fyrsti varaforseti sveitarstjórnar.
  3. Annar varaforseti sveitarstjórnar.
  4. Skrifarar sveitarstjórnar. Tveir fulltrúar og jafnmargir til vara úr hópi sveitarstjórnarfulltrúa.
  5. Byggðarráð. Þrír aðalfulltrúar úr sveitarstjórn sem aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 38. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Byggðarráð fer ásamt sveitarstjóra með framkvæmdastjórn sveitarfélagsins, hefur á hendi alla fjármálalega umsýslu og ber ábyrgð á stjórnsýslu og áætlanagerð sveitarfélagsins.
  6. Kjörstjórn. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 og 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.
  7. Undirkjörstjórnir. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara í undirkjörstjórn hverrar kjördeildar sem eru á Hofsósi, Hólum, Sauðárkróki, í Skagaseli, Fljótum, á Steinsstöðum, í Varmahlíð og á Heilbrigðisstofnun Skagafjarðar.

B. Fastanefndir kosnar til fjögurra ára. Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum. Skoðunarmenn skulu þó kosnir á fyrsta fundi skv. 69. gr. sveitarstjórnarlaga. Sveitarstjórn getur heimilað flokki eða framboðsaðila, sem fulltrúa á í sveitarstjórn en hefur ekki fengið kjörna nefndarmenn í eina eða fleiri fastanefndir sveitarfélagsins, að tilnefna fulltrúa til setu í þeim fastanefndum sveitarfélagsins þar sem sá flokkur eða framboðsaðili fær ekki kjörinn fulltrúa, með málfrelsi og tillögurétt.

 

1.

Fjölskyldu- og þjónustusvið:

  

1.1.

Fræðslunefnd. Sveitarstjórn kýs þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara í nefndina. Skulu þeir allir vera aðalmenn eða varamenn í sveitarstjórn. Nefndin fer með verkefni grunnskóla samkvæmt lögum um grunnskóla nr. 91/2008, verkefni leikskóla samkvæmt lögum um leikskóla nr. 90/2008, verkefni tónlistarskóla samkvæmt lögum um stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985, verkefni framhaldsskóla samkvæmt ákvæðum framhaldsskóla­laga nr. 92/2008 auk samstarfs við menntastofnanir, fullorðinsfræðslu og endurmenntun. Auk ofangreindra verkefna getur sveitarstjórn falið nefndinni ýmis verkefni með erindisbréfum.

  

1.2.

Félagsmála- og tómstundanefnd. Sveitarstjórn kýs þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara. Skulu þeir allir vera aðalmenn eða varamenn í sveitarstjórn. Nefndin fer með verkefni jafnréttisnefndar samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 og skal hún halda a.m.k. þrjá fundi á ári þar sem jafnréttismál eru aðalmál, verkefni húsnæðisnefndar samkvæmt lögum um húsnæðismál nr. 44/1998, málefni félagsþjónustu eins og þau eru skilgreind í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, hefur umsjón með daggæslu í heimahúsum, málefnum fatlaðra samkvæmt lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992 og með öldrunarmálum samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999. Nefndin fer með íþrótta- og æskulýðsmál, auk þess með vinnumál og heilbrigðismál. Sveitarstjórn setur sérstaka samþykkt um afgreiðslur félags­málastjóra sem ekki þurfa staðfestingu nefndarinnar. Auk ofan­greindra verkefna getur sveitarstjórn falið nefndinni ýmis verkefni með erindisbréfum.

  

1.3.

Barnaverndarnefnd. Skal skipuð fimm aðalmönnum og jafnmörgum til vara. Sveitarstjórn Skagafjarðar kýs fjóra en hreppsnefnd Akrahrepps kýs einn fulltrúa skv C-lið þessarar greinar. Verkefni barnaverndarnefndar eru samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002.

 

2.

Umhverfis- og tæknisvið:

  

2.1.

Skipulags- og byggingarnefnd. Sveitarstjórn kýs þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara. Skulu þeir allir vera aðal- eða varamenn í sveitarstjórn. Nefndin fer með byggingar- og skipulagsmál samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997, þ.m.t. skipulag hafnarsvæða að tillögu umhverfis- og samgöngunefndar og umferðarmál samkvæmt umferðar­lögum nr. 50/1987. Sveitarstjórn setur sérstaka samþykkt um afgreiðslur byggingarfulltrúa sem ekki þurfa staðfestingu nefndarinnar. Auk ofan­greindra verkefna getur sveitarstjórn falið nefndinni ýmis verkefni með erindis­bréfum.

  

2.2.

Landbúnaðarnefnd. Sveitarstjórn kýs þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara. Skulu þeir allir vera aðal- eða varamenn í sveitarstjórn. Verkefni nefndar­innar eru m.a. að sjá um framkvæmd laga um búfjárhald o.fl. nr. 103/2002 og hafa yfirumsjón með fjallskilamálum í samræmi við ákvæði fjallskilareglugerðar Skagafjarðarsýslu nr. 488/1998. Undir starfssvið nefndar­innar falla lög um landgræðslu nr. 17/1965. Nefndin hefur umsjón með eyðingu refa og minka samkvæmt lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum nr. 64/1994. Nefndin hefur umsjón með þeim jarðeignum sveitarfélagsins sem nýttar eru til landbúnaðar. Nefndin tilnefnir tvo í búfjáreftirlitsnefnd og tvo til vara. Nefndin gerir tillögu um kosningu í Skarðsárnefnd samkvæmt samningi þar um. Einnig hefur nefndin eftirlit með girðingum skv. 37. og 39. gr. vegalaga nr. 45/1994. Auk ofangreindra verkefna skal nefndin sinna öðrum þeim verkefnum sem sveitarstjórn felur henni með erindisbréfum.

  

2.3.

Umhverfis- og samgöngunefnd. Sveitarstjórn kýs þrjá aðalmenn og jafn­marga til vara. Skulu þeir allir vera aðal- eða varamenn í sveitarstjórn. Nefndin fer með hafnamál samkvæmt hafnalögum nr. 61/2003 og samgöngumál almennt í sveitarfélaginu. Nefndin gerir tillögu um skipulag hafnarsvæða til skipulags- og byggingarnefndar að höfðu samráði við Skipulagsstofnun. Nefndin fer með málefni sem varða náttúruverndarlög nr. 44/1999 og heilbrigðismál samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunar­varnir nr. 7/1998. Þá vinnur nefndin að mótun umhverfisstefnu fyrir sveitarfélagið. Við gerð svæðis- og aðalskipulagsáætlana skal leita eftir umsögn nefndarinnar í þeim málum sem hana varðar. Þá skal skipulags- og byggingarnefnd hafa samráð við nefndina um aðra deili­skipulagsvinnu varðandi málefni sem heyra undir umhverfisnefnd í samræmi við skipulags­reglugerð nr. 400/1998 og byggingarreglugerð nr. 441/1998. Auk ofangreindra verkefna getur sveitarstjórn falið nefndinni ýmis verkefni með erindisbréfum

 

3.

Markaðs- og þróunarsvið:

  

3.1.

Atvinnu- og ferðamálanefnd. Sveitarstjórn kýs þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara. Skulu þeir allir vera aðal- eða varamenn í sveitarstjórn. Nefndin fjallar um atvinnu- og ferðamál í Skagafirði og skal móta stefnu í þeim málaflokkum og forgangsraða aðgerðum sem nefndin telur brýnast á hverjum tíma. Einnig skal nefndin hafa yfirsýn yfir atvinnulíf í Skagafirði, fylgjast með þróun, stöðu og horfum í atvinnumálum sveitarfélagsins og taka þátt í umræðu um atvinnumál af hálfu sveitarfélagsins og stuðla að atvinnuuppbyggingu og nýsköpun í Skagafirði. Enn fremur skal nefndin greina leiðir til þess að efla atvinnulíf á svæðinu og skal í því skyni hafa náið samstarf við fyrirtæki og stofnanir sem hafa með atvinnumál að gera svo og við mennta- og rannsóknarstofnanir. Auk ofangreindra verkefna getur sveitarstjórn falið nefndinni ýmis verkefni með erindisbréfum.

  

3.2.

Menningar- og kynningarnefnd. Sveitarstjórn kýs þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara. Skulu þeir allir vera aðal- eða varamenn í sveitarstjórn. Nefndin fer með málefni bókasafna samkvæmt lögum um almennings­bókasöfn nr. 36/1997, málefni safna sbr. safnalög nr. 106/2001 og verndun gamalla húsa og fornra minja samkvæmt þjóðminjalögum nr. 107/2001. Nefndin fer með málefni félagsheimila og almennt með menningarmál í sveitarfélaginu. Nefndin skal gera tillögu um fulltrúa sveitarfélagsins í stjórnir félagsheimila og Menningarhússins Miðgarðs. Þá fer nefndin einnig með kynningarmál sveitarfélagsins. Auk ofangreindra verkefna getur sveitarstjórn falið nefndinni ýmis verkefni með erindis­bréfum.

Fundargerðir fastanefnda skal afgreiða á fundum sveitarstjórnar.

C. Kosningar í stjórnir, samstarfsnefndir og ráð til fjögurra ára:

  1. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Aðal- og varamenn samkvæmt lögum sambandsins.
  2. Ársþing SSNV. Aðal- og varamenn samkvæmt lögum samtakanna.
  3. Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Einn aðalmaður og einn til vara skv. 9. gr. laga um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands nr. 68/1994.
  4. Aðal- og hluthafafundir Tímatákns ehf. Þrír aðalmenn og þrír til vara.
  5. Aðal- og hluthafafundir Skagafjarðarveitna. Níu aðalmenn og níu til vara.
  6. Húsnæðissamvinnufélag Skagafjarðar. Einn fulltrúi og annar til vara.
  7. Kjaranefnd. Tveir fulltrúar og tveir til vara.
  8. Starfsmenntunarsjóður. Einn aðalmaður og annar til vara samkvæmt kjarasamningi frá 1. maí 1992.
  9. Almannavarnanefnd. Sveitarstjórn kýs tvo aðalfulltrúa og tvo til vara.
  10. Stjórn Dvalarheimilis á Sauðá. Tveir fulltrúar.
  11. Þjónustuhópur aldraðra. Tveir fulltrúar.
  12. Úttektarmenn. Tveir úttektarmenn og tveir til vara.
  13. Framkvæmdastjórn Byggðasögu. Einn aðalmaður og annar til vara.
  14. Utanfararsjóður sjúkra í Skagafirði. Þrír fulltrúar.
  15. Stjórn Minningarsjóðs Þórönnu Gunnlaugsdóttur og Halldórs Jónssonar. Tveir aðalmenn og tveir til vara.
  16. Styrktarsjóður Guðrúnar Þ. Sveinsdóttur. Tveir fulltrúar.
  17. Stjórn Skógræktarsjóðs Skagfirðinga. Þrír fulltrúar.
  18. Samstarfsnefnd með Akrahreppi. Tveir fulltrúar og tveir til vara.
  19. Stjórn Menningarseturs Skagafjarðar í Varmahlíð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.
  20. Heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra. Tveir aðalmenn og tveir til vara.
  21. Barnaverndarnefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara (sjá B-lið tölul. 1.3).
  22. Aðal- og hluthafafundir Eyvindastaðaheiðar ehf. Þrír fulltrúar og þrír til vara.
  23. Aðal- og hluthafafundir Flugu ehf. Þrír fulltrúar og þrír til vara.
  24. Samstarfsnefnd um Hólastað. Þrír fulltrúar.
  25. Samstarfsnefnd um lögreglumálefni, sbr. lögreglulög. Einn fulltrúi.
  26. Stjórn Menningarsjóðs Sparisjóðs Sauðárkróks. Einn fulltrúi.
  27. Stjórn Náttúrustofu. Þrír aðalmenn og þrír til vara.
  28. Norðurá, byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi vestra. Tveir aðalmenn og einn til vara.
  29. Fulltrúaráð Farskólans miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra. Einn fulltrúi.

Nefndir tilgreindar í 22.–25. tölul. þessarar greinar eru sameiginlegar fyrir Akrahrepp og Sveitarfélagið Skagafjörð í samræmi við samkomulag við Akrahrepp um hvernig að kosningum skuli staðið.

Fundargerðir framantalinna nefnda, þ.e. í C-lið, að barnaverndarnefnd undanskilinni, skulu fara til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.

54. gr.

Nefndir er vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum.

Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils og fyrr ef verkefni þeirra er lokið. Í slíkum nefndum skal ætíð sitja minnst einn aðal- eða varafulltrúi í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn getur þó afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er.

V. KAFLI

Um framkvæmdastjóra og starfslið sveitarfélagsins.

55. gr.

Ráðning sveitarstjóra.

Sveitarstjórn ræður sveitarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við sveitar­stjóra þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningar­samningur skal staðfestur af sveitarstjórn.

56. gr.

Hlutverk sveitarstjóra.

Sveitarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og æðsti yfirmaður starfsliðs þess, fyrirtækja og stofnana. Sveitarstjóri undirbýr fundi byggðarráðs og sveitarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda skv. 7. gr. Hann á sæti á fundum byggðar­ráðs/sveitarstjórnar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda sveitarfélagsins með sömu réttindum.

Sveitarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og málefna sveitar­félagsins að svo miklu leyti sem sveitarstjórn hefur ekki ákveðið annað.

Sveitarstjóri er prókúruhafi sveitarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur eða aðrar skuldbindingar sem samþykki sveitar­stjórnar þarf til. Sveitarstjóra er heimilt með samþykki sveitarstjórnar að veita öðrum starfsmönnum sveitarfélagsins prókúru.

Sveitarstjórn ákveður hver skuli gegna störfum sveitarstjóra í forföllum hans.

57. gr.

Ráðning starfsmanna.

Sveitarstjórn ræður fasta starfsmenn í helstu stjórnunarstöður, svo sem yfirmenn stofnana og sviða sveitarfélagsins, og veitir þeim lausn frá störfum að fengnum tillögum frá viðkomandi nefndum eftir því sem við getur átt.

Yfirmenn sviða og stofnana, í samráði við sveitarstjóra, ráða aðra fasta starfsmenn en þá sem greinir í 1. mgr. nema á annan veg sé mælt í reglugerð eða reglum sem sveitarstjórn hefur sett. Nýjar stöður eru háðar samþykki byggðarráðs.

Um starfskjör, réttindi og skyldur fastráðinna starfsmanna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga, starfs­mannastefnu og jafnréttisáætlun.

Um ráðningu lausráðinna starfsmanna fer eftir reglum sem sveitarstjórn setur. Um kaup og kjör fer eftir kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga.

VI. KAFLI

Um fjármálastjórn sveitarfélagsins.

58. gr.

Afgreiðsla fjárhagsáætlunar.

Sveitarstjórn skal afgreiða fjárhagsáætlun sveitarsjóðs, fyrirtækja sveitarfélagsins og stofnana fyrir upphaf viðkomandi fjárhagsárs að undangengnum tveimur umræðum í sveitarstjórn, sbr. 18. gr.

Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun skv. 1. mgr skal sveitarstjórn sækja skriflega um frest til samgönguráðuneytisins og tilgreina ástæðu fyrir umsókninni.

Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreikninga sveitarfélagsins og skal þar greint á milli rekstraráætlunar, fjárfestingaráætlunar og áætlunar um fjármagns­hreyfingar.

Sveitarstjórn setur reglur um vinnslu og framkvæmd fjárhagsáætlana.

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur sveitarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna sveitarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármagns á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhags­áætlunar hafa hliðsjón af veltufjárstöðu sveitarsjóðs í byrjun fjárhagsárs og áætla fyrir þeim breytingum sem nauðsynlegt er talið að gera á veltufjárstöðunni.

59. gr.

Fjárhagsáætlun.

Fjárhagsáætlun skv. 58. gr. skal vera meginregla um fjármálastjórn sveitarfélagsins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr sveitarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöld séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af sveitarstjórn.

Samþykki sveitarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni.

60. gr.

Endurskoðun fjárhagsáætlunar.

Sveitarstjórn er heimilt að endurskoða fjárhagsáætlun. Slíkar breytingar afgreiðir sveitarstjórn við eina umræðu í sveitarstjórn, enda hafi breytingartillögur verið sendar sveitarstjórnarfulltrúum með fundarboði og dagskrá a.m.k. tveimur sólarhringum fyrir sveitarstjórnarfund.

61. gr.

Þriggja ára áætlun.

Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal sveitarstjórn semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál sveitarfélagsins. Áætlunin skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins og skal hún unnin og afgreidd af sveitarstjórn innan tveggja mánaða frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar.

62. gr.

Miklar fjárfestingar og sala eigna.

Hyggist sveitarstjórn ráðast í fjárfestingar og áætlaður heildarkostnaður eða hlutur sveitarfélagsins í þeim nemur hærri fjárhæð en fjórðungi skatttekna yfirstandandi reikningsárs er skylt að leggja fyrir sveitarstjórn umsögn sérfróðs aðila um kostnaðar­áætlunina, væntanleg áhrif hennar á fjárhagsafkomu sveitarsjóðs á fyrirhuguðum verktíma og áætlun um árlegan rekstrarkostnað fyrir sveitarsjóð, sé um hann að ræða. Jafnframt skal gerð grein fyrir því hvernig framkvæmdin samræmist þriggja ára áætlun sveitarfélagsins.

Á sama tíma skal afla álits sérfróðs aðila áður en sveitarstjórn staðfestir samninga um framkvæmdir eða þjónustu við íbúa sveitarfélagsins sem gilda eiga til langs tíma og hafa í för með sér verulegar skuldbindingar fyrir sveitarsjóð. Þetta gildir einnig um samninga um sölu og endurleigu fasteigna sem falla undir 2. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákveði sveitarstjórn að selja fasteignir sveitarfélagsins sem falla undir 2. mgr. 73. gr. áðurnefndra laga skal hún tilkynna þá ákvörðun til eftirlitsnefndar.

63. gr.

Skil fjárhagsáætlunar og þriggja ára áætlunar.

Strax að lokinni afgreiðslu sveitarstjórnar skal senda samgönguráðuneytinu fjárhags­áætlun og þriggja ára áætlun. Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta skv. 60. gr.

64. gr.

Afgreiðsla ársreikninga.

Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu fyrir lok aprílmánaðar. Sveitarstjórn skal taka til umfjöllunar álit, greinargerðir og tillögur endurskoðanda og skoðunarmanna.

Sveitarstjórn skal hafa lokið fullnaðar afgreiðslu ársreikninga sveitarsjóðs, stofnana sveitarfélagsins og fyrirtækja þess eigi síðar en 1. júní ár hvert. Sveitarstjórnarmenn og sveitarstjóri skulu árita ársreikninginn.

Eintak af ársreikningi skal senda samgönguráðuneytinu og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna.

VII. KAFLI

Afbrigði og breytingar á samþykkt.

65. gr.

Afbrigði frá samþykkt.

Afbrigði frá samþykkt þessari getur sveitarstjórn gert í einstökum tilfellum þegar nauðsyn ber til ef meirihluti sveitarstjórnarmanna samþykkir það.

66. gr.

Breytingar á samþykkt.

Til að gera breytingar á samþykkt þessari þarf umræður á tveimur fundum í sveitar­stjórn, samþykki meirihluta greiddra atkvæða og staðfestingu samgöngu­ráðuneytisins.

Samþykkt þessi, sem samin er af sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Skagafjarðar, nr. 1200/2005, með síðari breytingum.

Samgönguráðuneytinu, 19. ágúst 2008.

F. h. r.
Hermann Sæmundsson.

Stefanía Traustadóttir.

B deild - Útgáfud.: 1. október 2008