Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 999/2005

Nr. 999/2005 9. nóvember 2005

AUGLÝSING
um skipulagsmál á Fljótsdalshéraði.

Deiliskipulag leikskólalóðar við Skógarlönd/Seyðisfjarðarveg, Egilsstöðum.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti þann 19. október 2005 deiliskipulag fyrir leikskóla á svæði fyrir þjónustustofnanir á mótum Skógarlanda og Seyðisfjarðarvegar á Egilsstöðum. Í deiliskipulaginu felst afmörkun leikskólalóðar fyrir rúmlega 1000 m2 byggingu á einni hæð fyrir allt að 157 börn. Norðan lóðarinnar er jafnframt opið svæði.

Deiliskipulag hesthúsabyggðar í landi Fossgerðis á Fljótsdalshéraði.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti þann 19. október 2005 deiliskipulag fyrir hesthúsabyggð í landi Fossgerðis. Deiliskipulagssvæðið er 59,5 ha að stærð. Fyrir á svæðinu eru tvær byggingar um 700 m2. Gert er ráð fyrir 19 nýjum hesthúsum í þremur þyrpingum. Jafnframt er gert ráð fyrir reiðhöll, reiðvelli, tamningagerði, beitarhólfum, reiðstígum og akvegum ásamt tilheyrandi bílastæðum.

Deiliskipulag frístundabyggðar í landi Úlfsstaða á Völlum, Fljótsdalshéraði.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti þann 19. október 2005 endurskoðun á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Úlfsstaða. Deiliskipulagið er endurskoðun á deiliskipulagi á sama stað, sem samþykkt var 1. ágúst 1990, lóðum fjölgar um 8 austan við svæðið, jafnframt er felld út lóð 1 í eldra skipulagi. Stærð svæðis er 21 ha, fjöldi lóða er 40 og stærð lóða frá 3690-6700 m2.

Ofangreind skipulagsmál hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Fljótsdalshéraði, 9. nóvember 2005.

Ómar Þ. Björgólfsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.


B-deild - Útgáfud.: 21. nóvember 2005

  Til baka