Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 894/2008

Nr. 894/2008 18. september 2008
REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 91/2001 um afgreiðslu lyfseðla, áritun og afhendingu lyfja.

1. gr.

2. málsl. 2. mgr. 3. gr. fellur niður.

2. gr.

Við 4. gr. bætist ný málsgrein sem orðast svo:

Sé rafrænum lyfseðli breytt skal staðfesting og kódanúmer lyfjafræðings sem ábyrgur er fyrir breytingunni, sbr. 5. gr., fylgja rafrænni sendingu lyfseðilsins til Tryggingastofnunar ríkisins.

3. gr.

1. mgr. 22. gr. orðast svo:

Lyfsalar og aðrir, sem leyfi hafa til lyfjasölu, skulu halda eftir lyfseðlum, útprentun rafrænna lyfseðla og lyfjapöntunum, er hljóða á eftirritunarskyld lyf.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. og 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum, öðlast gildi 1. október 2008.

Heilbrigðisráðuneytinu, 18. september 2008.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Berglind Ásgeirsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 22. september 2008