FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, og laga um Stjórnarráð Íslands, skiptist Stjórnarráð Íslands í ráðuneyti sem hér segir: forsætisráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, innanríkisráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti, utanríkisráðuneyti, velferðarráðuneyti.
Úrskurður þessi öðlast gildi 1. september 2012. Frá sama tíma falla úr gildi ákvæði eldri forsetaúrskurðar nr. 124 frá 28. september 2011 um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti sem og ákvæði forsetaúrskurðar nr. 86 frá 4. júlí 2012. Gjört á Bessastöðum, 30. ágúst 2012. Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.) Jóhanna Sigurðardóttir. |