1. gr. Eftirfarandi tveir stafliðir bætast við 11. gr. reglugerðarinnar: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 70/2014 frá 27. janúar 2014 um breytingar á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir er varða áhöfn í almenningsflugi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 193/2014 frá 25. september 2014, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64 frá 30. október 2014, bls. 357. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 245/2014 frá 13. mars 2014 sem breytir reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir er varða áhöfn í almenningsflugi, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 234/2014 frá 24. október 2014, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 4. desember 2014, bls. 577.
2. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. b, 28. gr. c, 31. og 73. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Innanríkisráðuneytinu, 9. febrúar 2015. Ólöf Nordal. Ragnhildur Hjaltadóttir. |