1. gr. Sjúkratryggingar Íslands endurgreiða kostnað vegna þjónustu sérgreinalækna samkvæmt gjaldskrá þessari, sjá fylgiskjal, sbr. reglugerð nr. 333/2011 um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands, sbr. IV. kafla laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar. 2. gr. Ef verð þjónustu er lægra en skv. gjaldskrá þessari skal endurgreiðslan miðuð við verð þjónustunnar. 3. gr. Endurgreiðsla Sjúkratrygginga Íslands miðast við gjaldskrár sem fram koma í fylgiskjali með gjaldskrá þessari. Einingarverð skal vera 271 kr. Í þeim tilfellum sem sérgreinalæknir sendir reikninga rafrænt til Sjúkratrygginga Íslands, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 333/2011 skal einingarverð vera fjórum krónum hærra ef gögn eru send á diski eða lykli en sex krónum hærra ef gögn eru send rafrænt yfir netið. Reiknaður kostnaðarhluti sjúklings skal þó reiknaður út frá einingarverði skv. 1. mgr. 4. gr. Gjaldskrá þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 38. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, og reglugerð nr. 33/2011, um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands, öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. maí 2011. Sjúkratryggingum Íslands, 1. apríl 2011. Steingrímur Ari Arason. Kristján Guðjónsson. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal) |