I. KAFLI Um skipan bæjarstjórnar og verkefni hennar. 1. gr. Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar er skipuð 9 bæjarfulltrúum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. 2. gr. Starfstímabil bæjarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í bæjarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum. 3. gr. Bæjarstjórn fer með stjórn Akraneskaupstaðar samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer bæjarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarfélagsins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn. 4. gr. Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna bæjarfélagsins og vera í fyrirsvari fyrir það og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa þess. 5. gr. Bæjarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur bæjarstjórn ákveðið að bæjarfélagið taki að sér verkefni sem varðar íbúa þess sérstaklega, enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum. 6. gr. Meðal verkefna bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar er: - Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, ráð, stjórnir og aðrar nefndir skv. IV. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga bæjarfélagsins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem endurskoða skal hjá bæjarfélaginu, stofnunum þess og fyrirtækjum.
- Að móta stefnu fyrir starfsemi bæjarstjórnar, stofa, fyrirtækja og deilda. Setja starfsemi bæjarins reglur, m.a. um ábyrgðarmörk ráða, stjórna og nefnda, kjörinna fulltrúa og embættismanna, gjaldskrár o.þ.h. eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
- Að stjórna fjármálum bæjarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar. Bæjarstjórn tekur ákvarðanir um verulegar skuldbindingar bæjarfélagsins til lengri tíma.
- Að gera fjárhagsáætlanir og starfsáætlanir sem eru stefnumótandi fyrir stofur, fyrirtæki, stofnanir og deildir.
- Að ákveða stjórnskipan bæjarfélagsins, ráða bæjarstjóra og aðra starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá bæjarfélaginu sbr. 78. gr.
II. KAFLI Um fundarsköp bæjarstjórnar. 7. gr. Bæjarstjórn heldur reglulega fundi tvisvar í hverjum mánuði, annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar. Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 17.00. Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati forseta og bæjarstjóra og skylt er að halda aukafund í bæjarstjórn ef a.m.k. þriðjungur bæjarstjórnarmanna krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni. 8. gr. Sá kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórn kveður hana saman til fyrsta fundar að afloknum bæjarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar í bæjarstjórn átt jafnlengi setu í sveitarstjórn, fer aldursforseti þeirra með fundarboð skv. 1. mgr. 9. gr. Bæjarstjóri, sbr. þó 8. gr., boðar bæjarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi bæjarstjórn ekki gert það. 10. gr. Íbúum bæjarfélagsins skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir. Miðað skal við að sem flestir íbúar bæjarfélagsins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni. Í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar tekur bæjarstjórnin ákvörðun um hvernig fundir hennar verði auglýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum bæjarfélagsins með tryggum hætti, svo sem í dreifibréfi, á vefsíðu bæjarins og/eða auglýsingu í staðbundnu fréttablaði. 11. gr. Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta og skal dagskráin fylgja fundarboði. Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka: - Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningu forseta og varaforseta, kosningar ráða, stjórna og nefnda á vegum bæjarfélagsins, svo og ráðningar bæjarstjóra og annarra starfsmanna í helstu stjórnunarstöður hjá bæjarfélaginu.
- Mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar, sbr. 6. gr., og bæjarstjóri, bæjarfulltrúar eða ráð vilja taka á dagskrá. Óski bæjarfulltrúi eftir að taka mál á dagskrá, skal hann tilkynna bæjarstjóra það skriflega eða með rafrænum hætti með tillögu eða fyrirspurn fyrir kl. 13.00 föstudaginn fyrir bæjarstjórnarfund. Ráð sem vill vísa máli til bæjarstjórnar skal hafa skilað samþykkt um það í frágenginni fundargerð fyrir kl. 13.00 á fimmtudegi fyrir bæjarstjórnarfund.
- Fundargerðir ráða og stjórna, til kynningar.
Dagskrá bæjarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem bæjarstjóri telur nauðsynleg. Áður en skilafrestur tillagna um dagskrármál skv. 2. tölulið rennur út, skal birta bæjarfulltrúum með rafrænum hætti skrá yfir fundi nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarins, sbr. 57. gr., sem haldnir hafa verið frá því að skilafrestur rann síðast út. Skoðast skráin sem viðauki við dagskrá, sbr. 3. tölulið. 12. gr. Bæjarstjóri skal hafa sent bæjarstjórnarmönnum fundarboð bæjarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum þannig að þau gögn berist þeim í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir bæjarstjórnarfund. Aukafundir skulu á sama hátt boðaðir með a.m.k. sólarhrings fyrirvara. 13. gr. Dagskrá bæjarstjórnarfundar skal vera aðgengileg bæjarbúum í þjónustuveri Akraneskaupstaðar og á vefsíðu bæjarins eða með öðrum hætti sem bæjarstjórnin ákveður. 14. gr. Sá bæjarfulltrúi er boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr. setur fyrsta fund nýkjörinnar bæjarstjórnar og stýrir honum uns forseti hefur verið kjörinn. Forseti bæjarstjórnar skal kjörinn til eins árs. Ef forseti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórninni, skal hann víkja sæti og forsetakjör fara fram á ný. Sá er rétt kjörinn forseti sem fengið hefur atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórninni. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri bæjarfulltrúar fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn forseti sem fleiri atkvæði fær þó hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti kosningu. Forseti bæjarstjórnar stjórnar kjöri tveggja varaforseta bæjarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. 3. mgr. Varaforsetar skulu kjörnir til jafnlangs tíma og forseti. Tilkynna skal kjör forseta og varaforseta til samgönguráðuneytisins þegar að því loknu. Sé enginn forseti á fundi gegnir aldursforseti störfum forseta nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra. Ef forseti deyr eða verður varanlega forfallaður frá störfum skal kjósa forseta í hans stað til loka kjörtímabils forseta. 15. gr. Bæjarstjórn getur kosið tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi bæjarstjórnarmanna til eins árs í senn á sama fundi og kosning forseta fer fram. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í bæjarstjórninni. 16. gr. Bæjarstjórnarfundi skal halda að jafnaði í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir. Bæjarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis málsins, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í bæjarstjórn. Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn. 17. gr. Bæjarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur bæjarstjórnarmanna er á fundi. Bæjarstjórn getur enga bindandi ályktun gert nema bæjarstjórnarfundur sé lögmætur. 18. gr. Forseti bæjarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók bæjarstjórnarinnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar. Forseti úrskurðar um skilning á fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. Forseti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á bæjarstjórnarfundum og er bæjarstjórnarmönnum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal. Leyfi forseta þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á bæjarstjórnarfundum. 19. gr. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í bæjarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá, nema forseti eða bæjarstjórn ákveði annað. Heimilt er að taka til meðferðar á bæjarstjórnarfundi mál sem ekki hefur verið á dagskrá ef 2/3 viðstaddra bæjarstjórnarmanna samþykkja slíkt afbrigði. 20. gr. Bæjarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni: - Fjárhagsáætlanir bæjarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
- Ársreikninga bæjarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
- Samþykktir og reglugerðir sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
- Áætlanir fyrir bæjarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
- Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.
21. gr. Bæjarfulltrúa er skylt að sækja alla bæjarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi. Sé bæjarfulltrúi forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til bæjarstjóra, sem boðar þá varamann hans á fund. Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast. Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt, en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í bæjarstjórn. Bæjarstjórn getur heimilað einstaklingi utan bæjarstjórnar að taka til máls á bæjarstjórnarfundi. 22. gr. Bæjarfulltrúa ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að afstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Sama á við sé hann fyrirsvarsmaður aðila sem málið varðar með sambærilegum hætti. Bæjarfulltrúar eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum bæjarstjórnarinnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf. Bæjarfulltrúar sem jafnframt eru starfsmenn bæjarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir bæjarstjórnina eru alltaf vanhæfir þegar bæjarstjórnin fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um bæjarstjóra né þegar bæjarstjórnin fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga bæjarfélagsins. Bæjarfulltrúa sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli bæjarstjórnar á því. Bæjarfulltrúa er heimilt að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða. Bæjarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver bæjarfulltrúi sé vanhæfur. Bæjarfulltrúi sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt. Bæjarfulltrúi sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal bæjarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess. 23. gr. Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á bæjarstjórnarfundum. Bæjarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu bæjarfulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða bæjarstjóra, framsögumann í máli eða bæjarfulltrúa sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis, ákveður forseti í hvaða röð þeir skuli tala. Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað. 24. gr. Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta og fundarins. Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn forseta. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls. Bæjarfulltrúi má ekki lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn nema með leyfi forseta. 25. gr. Beri bæjarfulltrúi aðra menn brigslum skal forseti víta hann. Forseti getur lagt til við bæjarstjórn að bæjarfulltrúi sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Uni bæjarfulltrúi ekki úrskurði forseta eða bæjarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal forseti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur. 26. gr. Telji forseti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver bæjarfulltrúi kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar. 27. gr. Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef forseti óskar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu. 28. gr. Mál er afgreitt í bæjarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá bæjarstjórn eða vísa því til afgreiðslu ráðs, stjórnar, nefndar, eða bæjarstjóra. Máli sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Bæjarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma. 29. gr. Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar. Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það, skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð. Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef bæjarfulltrúi óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess. 30. gr. Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti. Kosningar sem fara fram í bæjarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d'Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við forsetakjör. 31. gr. Aðalskrifstofa Akraneskaupstaðar leggur bæjarstjórn til fundarritara til að annast færslu gerðabókar og ritun fundargerða bæjarstjórnar. Í gerðabók bæjarstjórnar skal skrá númer hvers fundar, hvar og hvenær hann er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók dagskrá fundar, upphafstíma fundar, fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerðar. Viðstaddir bæjarfulltrúar skulu rita nöfn sín í gerðabók við slit fundar. Fundargerðir bæjarstjórnar skal skrá í tölvu. Í fundargerð skal getið, hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál í sérstaka gerðabók. Í lok fundar skal fundargerð prentuð, lesin upp og undirrituð af fundarmönnum. Einnig skulu forseti og skrifarar setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerðar og blaðsíðurnar tölusettar í áframhaldandi töluröð frá síðasta fundi. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu. Bæjarfulltrúi sem gera vill athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði. Umræður á bæjarstjórnarfundum skulu hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Bæjarstjórn skal setja um það nánari reglur. III. KAFLI Um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa. 32. gr. Bæjarfulltrúa er bæði rétt og skylt að sækja fundi bæjarstjórnar nema lögmæt forföll hamli. Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í ráð, stjórnir og nefndir á vegum bæjarfélagsins. Hverjum bæjarfulltrúa er skylt að taka að sér þau störf, sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnarinnar, svo sem forsetastörf. Þó getur sá sem verið hefur forseti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í ráði, stjórn eða nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi. 33. gr. Bæjarfulltrúa ber að gegna störfum sínum í bæjarstjórn af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna bæjarfélagsins, en í störfum sínum er bæjarfulltrúi einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni. 34. gr. Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari. Bæjarfulltrúa er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem bæjarstjórn er að lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur forseti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur bæjarfulltrúa tekur þátt í atkvæðagreiðslunni. Bæjarfulltrúi á rétt á að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skv. 3. tölulið 11. gr. samþykktar þessarar. 35. gr. Aðalmenn í bæjarstjórn eiga óhindraðan aðgang að bókum og skjölum bæjarfélagsins og einnig að stofnunum og fyrirtækjum þess á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna. 36. gr. Bæjarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í bæjarstjórn. 37. gr. Bæjarfulltrúi skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að bæjarfulltrúi lætur af þeim störfum. 38. gr. Nú telur bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum sínum í bæjarstjórninni án óhæfilegs álags og getur bæjarstjórnin þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. Missi fulltrúi í bæjarstjórn kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórninni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. Nú er bæjarfulltrúi af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal bæjarstjórnin þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir. 39. gr. Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum bæjarfélagsins samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar. Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr. 40. gr. Haga skal fundum bæjarstjórnar þannig að bæjarfulltrúar eigi möguleika á að taka sér orlof árlega. 41. gr. Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa gilda einnig um varafulltrúa sem taka sæti í bæjarstjórn. IV. KAFLI Ráð, stjórnir og nefndir. 42. gr. Bæjarstjórn kýs fulltrúa í ráð, stjórnir og nefndir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Slíkar kosningar skulu vera leynilegar bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarstjórnarmaður óskar þess. Bæjarstjórn skal kjósa formenn og varaformenn ráða á þeim fundi sem kosning ráða, stjórna og nefnda fer fram. Formenn og varaformenn ráða skulu vera aðalbæjarfulltrúar. Formönnum og í forföllum þeirra varaformönnum ráða er heimilt að sitja nefndar- og stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt í þeim fagnefndum og stjórnum sem heyra undir ráðin. 43. gr. Starfsmenn fyrirtækja og stofnana bæjarfélagsins eru ekki kjörgengir í ráð, stjórnir og nefndir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá. 44. gr. Á fyrsta fundi stjórnar/nefndar skal kjósa formann, varaformann og ritara stjórnar/nefndar nema lög eða bæjarstjórn ákveði annað. Formaður ráðs boðar stjórn/nefnd saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það, nema formaður hafi áður verið valinn af bæjarstjórn. Formaður stjórnar/nefndar boðar eða lætur boða fundi í stjórn/nefnd með a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara. 45. gr. Ráðs-/stjórnar-/nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Geti ráðs-/stjórnar-/nefndarmaður ekki sótt fund, tilkynnir hann forföll til formanns og boðar varamann sinn. Þegar aðalmaður flyst burt úr bæjarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega, tekur varamaður hans sæti nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju. Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um ráðs- og nefndarkosningar skal sá sem tilnefndi viðkomandi ráðs-/stjórnar-/nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. 46. gr. Fundir ráða, stjórna og nefnda skulu að jafnaði haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundunum. Ráð, stjórn eða nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn bæjarins og jafnframt boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál. 47. gr. Formaður ráðs, stjórnar eða nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarins eftir því sem við á. Jafnframt gilda ákvæði erindisbréfa ráða, stjórna og nefnda um meðferð mála. 48. gr. Bæjarstjórn staðfestir erindisbréf fyrir ráð, stjórnir og nefndir, þar sem kveðið er á um hlutverk, valdsvið og starfshætti þeirra í samræmi við lög, reglugerðir og almennar samþykktir bæjarstjórnar. 49. gr. Ráðunum sem talin eru upp í 1.-3. tölulið A-liðar 57. gr. er heimilt að afgreiða mál á verksviði þeirra á grundvelli erindisbréfs skv. 48. gr. án staðfestingar bæjarstjórnar, ef: - lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því,
- þau varða ekki fjárhag sveitarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun,
- þau víkja ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum.
Eftir því sem nauðsynlegt reynist skal nánar kveðið á um afmörkun þessara heimilda í viðauka við samþykkt þessa. 50. gr. Bæjarstjórn er heimilt að fela eftirtöldum embættismönnum fullnaðarafgreiðslu mála á sama hátt og með sömu skilyrðum og nefnd eru í 49. gr.: - Fjármálastjóra í umboði bæjarráðs að afgreiða afslátt af fasteignasköttum til elli- og örorkulífeyrisþega á grundvelli samþykktra reglna þar um.
- Byggingarfulltrúa að afgreiða mál samkvæmt samþykkt um afgreiðslu byggingarfulltrúans á Akranesi.
- Bæjarstjóra í umboði bæjarráðs samkvæmt áfengislögum nr. 75/1998, gildandi málsmeðferðarreglum um áfengisveitingaleyfi og lögum um veitinga- og gististaði nr. 85/2007 að gefa umsagnir um veitingu og endurnýjun veitingaleyfa.
- Félagsmálastjóra í umboði fjölskylduráðs að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu í samræmi við reglur um fjárhagsaðstoð á Akranesi, samþykktar af bæjarstjórn.
Bæjarstjórn skal setja skýrar reglur um afgreiðslu embættismanna, en viðkomandi ráð hafa eftirlit með þeim og kalla reglulega eftir skýringum og upplýsingum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli þeirra. Embættismanni er alltaf heimilt að vísa ákvörðun skv. 1. mgr. til viðkomandi ráðs til fullnaðarafgreiðslu. Mál sem starfsmenn afgreiða skulu kynnt í viðkomandi ráði með skriflegri skýrslu í lok hvers ársfjórðungs. 51. gr. Mál sem embættismanni er heimilt að afgreiða eða sem hefur fengið afgreiðslu í ráði getur komið til ákvörðunar bæjarstjórnar með tvennum hætti: - Ráði er skylt að vísa afgreiðslu máls til bæjarstjórnar ef a.m.k. þriðjungur ráðsmanna óskar eftir því með bókun á ráðsfundi.
- Bæjarfulltrúi getur með formlegri og rökstuddri tillögu óskað þess að ákvörðun ráðs eða embættismanns, sbr. 50. og 51. gr., verði tekin á dagskrá bæjarstjórnar. Þetta gildir þó ekki ef ákvörðun hefur verið tilkynnt málsaðila og hagsmunir hans mæla gegn því að mál verði tekið upp að nýju.
52. gr. Aðili máls á rétt á að mál hans sé tekið til meðferðar á ný eftir fullnaðarafgreiðslu þess hjá bæjarstjórn, ráði eða embættismanni, ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin. Beiðni um endurupptöku máls skal beina til viðkomandi ráðs og verður að jafnaði að koma fram áður en þrír mánuðir eru liðnir frá því að málsaðila er tilkynnt um afgreiðslu. Ef endurupptökuskilyrði eru fyrir hendi tekur viðkomandi ráð ákvörðun um málsmeðferð. 53. gr. Ráð, stjórnir og nefndir bæjarins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari skal færa fundargerð í gerðabók. Heimilt er að starfsmenn aðalskrifstofu annist ritun fundargerða í stað kjörinna ritara. Um ritun fundargerða ráða, stjórna og nefnda gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 31. gr. 54. gr. Fundargerðir ráða, stjórna og nefnda bæjarins skulu teknar á dagskrá bæjarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum fundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar bæjarstjórnar, eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar, ber að taka þær sérstaklega fyrir. Hafi ályktun ráðs, stjórnar eða nefndar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir, skal ályktunin ætíð lögð fyrir bæjarráð og bæjarstjórn. 55. gr. Bæjarstjórn og -ráð geta kosið nefndir og starfshópa til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda/starfshópa fellur niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnar og fyrr ef verkefni nefndar/starfshóps er lokið. Bæjarstjórn og -ráð geta einnig afturkallað umboð slíkra nefnda/starfshóps hvenær sem er. 56. gr. Skylt er starfsmönnum bæjarins að sitja fundi ráða, stjórna og nefnda ef þess er óskað. 57. gr. Bæjarstjórn kýs í eftirfarandi ráð, stjórnir og nefndir. Bæjarstjórn kýs formenn og varaformenn nefnda skv. A- og B-lið: A. Til eins árs: Á fundi í júní ár hvert: - Bæjarráð. Þrjá bæjarfulltrúa sem aðalmenn og jafn marga til vara skv. 38. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Um kjör í bæjarráð gilda ákvæði 58. gr.
- Fjölskylduráð. Þrjá aðalmenn og þrjá til vara samkvæmt ákvæðum 64. gr.
- Framkvæmdaráð. Þrjá aðalmenn og þrjá til vara samkvæmt ákvæðum 70. gr.
B. Til fjögurra ára: Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum: - Skipulags- og umhverfisnefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara. Nefndin annast verkefni samkvæmt erindisbréfi.
- Stjórn Akranesstofu. Fimm aðalmenn og fimm til vara. Stjórnin annast verkefni samkvæmt erindisbréfi.
- Barnaverndarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmarga til vara, samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002.
- Kjörstjórn. Þrjá aðalmenn og þrjá til vara. Kjörstjórn fer með verkefni kjörstjórnar við alþingiskosningar skv. 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 og yfirkjörstjórnar við bæjarstjórnarkosningar skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna.
- Undirkjörstjórnir. Þrjá aðalmenn í hverja undirkjörstjórn og jafnmarga til vara.
- Skoðunarmenn. Tvo aðalmenn og jafnmarga til vara, skv. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
- Samstarfsnefnd. Þrjá aðalmenn skv. grein 11.2.1 kjarasamnings LN og STAK.
C. Í sameiginlegar stjórnir og tilnefningar þingfulltrúa hjá samtökum sveitarfélaga: - Stjórn Dvalarheimilisins Höfða. Þrjá aðalmenn og þrjá til vara. Stjórnin starfar samkvæmt skipulagsskrá.
- Stjórn Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar. Einn aðalmann og annan til vara samkvæmt reglugerð sjóðsins.
- Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Einn aðalmann og annan til vara samkvæmt stofnsamþykktum Orkuveitu Reykjavíkur.
- Stjórn Faxaflóahafna. Einn aðalmann og annan til vara ásamt einum áheyrnarfulltrúa samkvæmt stofnsamþykktum Faxaflóahafna.
- Skólanefnd Tónlistarskóla. Þrjá aðalmenn og þrjá til vara.
- Heilbrigðisnefnd Vesturlands. Sveitarstjórnirnar á svæðinu kjósa sameiginlega fimm aðalmenn og jafnmarga til vara í nefndina skv. 11. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
- Fulltrúaráð Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Fimm aðalmenn og jafnmarga til vara samkvæmt samningi sveitarfélaga á Vesturlandi um rekstur skólans, 3. október 2006.
- Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands. Einn aðalmann og annan til vara skv. 9. gr. laga um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands nr. 68/1994.
- Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjóra þingfulltrúa og jafnmarga til vara skv. 7. gr. laga Sambands íslenskra sveitarfélaga.
- Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Fimm fulltrúa á aðalfund og jafnmarga til vara samkvæmt samþykktum SSV.
- Almannavarnanefnd. Tvo aðalmenn og jafnmarga til vara, skv. 8. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008.
58. gr. Um bæjarráð. Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá bæjarfulltrúa í bæjarráð til eins árs og jafnmarga til vara. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð. Varamenn er heimilt að kjósa úr hópi aðal- og varamanna í bæjarstjórn. Kosningar í bæjarráð skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess. Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt, en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð. Bæjarstjórn getur heimilað flokki eða framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn, en hefur ekki fengið kjörinn bæjarráðsmann, að tilnefna fulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt. Skylt er bæjarstjórn að gefa fulltrúa flokks/framboðsaðila kost á setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt þann tíma sem fundir bæjarstjórnar falla niður vegna sumarleyfa. 59. gr. Bæjarráð skal að jafnaði halda fund á föstum tíma og eigi sjaldnar en tvisvar í mánuði. Aukafundi skal halda eftir þörfum að ákvörðun formanns eða ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess. 60. gr. Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs. Hann sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund, tilkynnir hann forföll til bæjarstjóra og boðar varamann sinn. 61. gr. Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðs. Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsmanna óskar þess. Aðalskrifstofa Akraneskaupstaðar annast ritun fundargerða bæjarráðs, sé þess óskað. Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 31. gr. Bæjarráðsfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundum. 62. gr. Bæjarráð hefur umsjón og eftirlit með stjórnsýslu bæjarins, fjármálum, rekstri fyrirtækja kaupstaðarins, starfsmannamálum, málum sem falla undir stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 50/1996, lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008, málefnum sem falla undir stjórnir byggðasamlaga eða annarra fyrirtækja sem Akraneskaupstaður á aðild að og skulu fundargerðir þeirra lagðar fyrir bæjarráð. Bæjarráð hefur umsjón með menningarmálum, brunamálum, almannavörnum, hreinlætismálum, skipulags- og byggingarmálum, umhverfismálum, umferðarmálum, atvinnumálum og öðrum þeim verkefnum sem öðrum ráðum eru ekki sérstaklega falin. Bæjarráð hefur umsjón með sérverkefnum sem heyra undir bæjarstjóra. Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með fjármálastjórn bæjarins að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Bæjarráð semur drög að árlegri starfsáætlun og fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja að fengnum tillögum hlutaðeigandi ráða og stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Bæjarráð gerir tillögu til bæjarstjórnar um heildarendurskoðun fjárhagsáætlunar. Bæjarráð hefur eftirlit með að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja bæjarins lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu, svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um. Bæjarráði er heimil fullnaðarafgreiðsla mála, sbr. 49. gr., sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu. Bæjarráð úrskurðar um heimild til endurupptöku mála skv. 52. gr. Í sumarleyfi bæjarstjórnar annast bæjarráð fullnaðarafgreiðslu þeirra mála sem berast kunna frá ráðum og nefndum. Bæjarstjórn setur bæjarráði erindisbréf. 63. gr. Eftirtaldar nefndir og stjórnir sem kjörnar eru af bæjarstjórn heyra undir bæjarráð: Stjórn Akranesstofu Stjórn Dvalarheimilisins Höfða Stjórn Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar Skipulags- og umhverfisnefnd Almannavarnanefnd Samstarfsnefnd um kjaramál Kjörstjórn við alþingis- og sveitarstjórnarkosningar Undirkjörstjórnir við alþingis- og sveitarstjórnarkosningar. 64. gr. Um fjölskylduráð. Bæjarstjórn skal á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá fulltrúa í fjölskylduráð til eins árs og jafnmarga til vara. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í fjölskylduráð en varamenn þurfa ekki að vera bæjarfulltrúar. Kosningar í fjölskylduráð skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess. 65. gr. Fjölskylduráð skal að jafnaði halda fund á föstum tíma og eigi sjaldnar en tvisvar í mánuði. Aukafundi skal halda eftir þörfum að ákvörðun formanns eða ef framkvæmdastjóri Fjölskyldustofu, bæjarstjóri, formaður ráðsins eða a.m.k. tveir ráðsmenn óska þess. 66. gr. Framkvæmdastjóri Fjölskyldustofu undirbýr ráðsfundi í samráði við formann ráðsins. Hann sér um að fjölskylduráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti ráðsmaður ekki sótt fund, tilkynnir hann forföll til framkvæmdastjóra Fjölskyldustofu og boðar varamann sinn. 67. gr. Formaður fjölskylduráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar ráðsins. Heimilt er að taka mál til meðferðar í fjölskylduráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver ráðsmanna óskar þess. Aðalskrifstofa Akraneskaupstaðar annast ritun fundargerða fjölskylduráðs, sé þess óskað. Um ritun fundargerða fjölskylduráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 31. gr. Fjölskylduráðsfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundum. 68. gr. Fjölskylduráð fer með umsjón og eftirlit með málum sem heyra undir framkvæmd eftirfarandi laga og reglugerða byggðra á þeim, eins og þau eru á hverjum tíma og að því marki sem lögin setja skyldur á herðar sveitarfélaga: félagsmál sbr. lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, barnaverndarmál sbr. barnaverndarlög nr. 80/2002 og barnalög nr. 76/2003, húsnæðismál sbr. lög nr. 44/1998, málefni fatlaðra sbr. lög nr. 59/1992, málefni aldraðra sbr. lög nr. 125/1999, heilbrigðismál sbr. lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, forvarnir sbr. lög um lýðheilsustöð nr. 18/2003, æskulýðs-, tómstunda- og íþróttamál sbr. lög nr. 64/1998 og lög nr. 70/2007, grunnskóla sbr. lög nr. 91/2008, leikskóla sbr. lög nr. 90/2008 og reglugerð um starfsemi leikskóla nr. 225/1995, tónlistarskóla sbr. lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985, daggæslu barna sbr. reglugerð nr. 198/1992 um eftirlit og leyfisveitingar vegna daggæslu barna í heimahúsum, aðrar lagasetningar Alþingis sem á hverjum tíma tengjast verkefnum ráðsins. Fjölskylduráði er heimil fullnaðarafgreiðsla mála, sbr. 49. gr. Fjölskylduráð úrskurðar um heimild til endurupptöku mála skv. 52. gr. Bæjarstjórn setur fjölskylduráði erindisbréf. 69. gr. Eftirtaldar nefndir og stjórnir sem kjörnar eru af bæjarstjórn heyra undir fjölskylduráð: barnaverndarnefnd, fulltrúaráð FVA, skólanefnd Tónlistarskóla. 70. gr. Um framkvæmdaráð. Bæjarstjórn skal á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá fulltrúa í framkvæmdaráð til eins árs og jafnmarga til vara. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í framkvæmdaráð en varamenn þurfa ekki að vera bæjarfulltrúar. Kosningar í framkvæmdaráð skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess. 71. gr. Framkvæmdaráð skal að jafnaði halda fund á föstum tíma og eigi sjaldnar en tvisvar í mánuði. Aukafundi skal halda eftir þörfum að ákvörðun formanns eða ef framkvæmdastjóri Framkvæmdastofu, bæjarstjóri, formaður ráðsins eða a.m.k. tveir ráðsmenn óska þess. 72. gr. Framkvæmdastjóri Framkvæmdastofu undirbýr ráðsfundi í samráði við formann ráðsins. Hann sér um að framkvæmdaráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti ráðsmaður ekki sótt fund tilkynnir hann forföll til framkvæmdastjóra Framkvæmdastofu og boðar varamann sinn. 73. gr. Formaður framkvæmdaráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar ráðsins. Heimilt er að taka mál til meðferðar í framkvæmdaráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver ráðsmanna óskar þess. Aðalskrifstofa Akraneskaupstaðar annast ritun fundargerða framkvæmdaráðs, sé þess óskað. Um ritun fundargerða framkvæmdaráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 31. gr. Framkvæmdaráðsfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundum. 74. gr. Framkvæmdaráð annast stefnumótun og eftirlit með framkvæmdum, rekstri fasteigna og annarra mannvirkja Akraneskaupstaðar. Framkvæmdaráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um stefnu í málefnum sem tengjast verklegum framkvæmdum á vegum bæjarins. Framkvæmdaráð hefur yfirumsjón með Framkvæmdastofu Akraneskaupstaðar, sem sér m.a. um undirbúning allra framkvæmda, s.s. framkvæmdir við fasteignir, götur, gangstéttir og stíga, jarðeignir og lönd, gatnahreinsun, leiksvæði og opin svæði, eignaumsýslu, ásamt innkaupum og útboðum vegna framangreindra þátta. Framkvæmdaráð fer með stjórn Fasteignafélags Akraneskaupstaðar slf. og Fasteignafélags Akraneskaupstaðar ehf. og þeirra verkefna sem félögunum eru falin. Framkvæmdaráð fer með yfirumsjón með rekstri, viðhaldi og endurbótum fasteigna Akraneskaupstaðar. Framkvæmdaráði er heimil fullnaðarafgreiðsla mála, sbr. 49. gr. Framkvæmdaráð úrskurðar um heimild til endurupptöku mála skv. 52. gr. Bæjarstjórn setur framkvæmdaráði erindisbréf. 75. gr. Samkvæmt samþykktum Fasteignafélags Akraneskaupstaðar ehf. og Fasteignafélags Akraneskaupstaðar slf. fer framkvæmdaráð með stjórn félaganna. V. KAFLI Um framkvæmdastjórn og starfslið bæjarfélagsins. 76. gr. Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjórann þar sem meðal annars skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal staðfestur af bæjarstjórn. 77. gr. Bæjarstjóri undirbýr fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum bæjarstjórnarinnar og bæjarráðsins og hefur þar málfrelsi og tillögurétt, en eigi atkvæðisrétt, nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarráðið og bæjarstjórnina. Hann hefur og rétt til setu á fundum ráða, stjórna og nefnda bæjarfélagsins með sömu réttindum. Bæjarstjórinn hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og málefna bæjarfélagsins að svo miklu leyti sem bæjarstjórnin ákveður ekki annað. Bæjarstjóri fer m.a. með framkvæmdastjórn aðalskrifstofu og sérverkefna. Bæjarstjórinn er prókúruhafi bæjarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna bæjarfélagsins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarstjórnarinnar þarf til. Bæjarstjóra er heimilt með samþykki bæjarráðs að veita öðrum starfsmönnum bæjarins prókúru. Bæjarstjórinn er æðsti yfirmaður starfsliðs bæjarfélagsins. Forseti bæjarstjórnar er staðgengill bæjarstjóra. Í forföllum forseta bæjarstjórnar er formaður bæjarráðs staðgengill bæjarstjóra. 78. gr. Bæjarstjórn ræður starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá bæjarfélaginu, að fengnum tillögum viðkomandi ráða, svo sem framkvæmdastjóra ráða og fyrirtækja og aðra yfirmenn stofnana bæjarfélagsins, og veitir þeim lausn frá störfum. Ennfremur ræður bæjarstjórn, að fengnum tillögum viðkomandi ráða, skólastjóra leik- og grunnskóla, framkvæmdastjóra fyrirtækja og stofnana með sjálfstæðan fjárhag í eigu bæjarins. Framkvæmdastjóri stofu ræður deildarstjóra, að fenginni umsögn viðkomandi ráðs. Forstöðumenn stofnana ráða aðra starfsmenn. Samþykki bæjarráðs þarf fyrir ráðningu í öll ný stöðugildi. 79. gr. Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna bæjarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga, starfmannastefnu og jafnréttisáætlun. VI. KAFLI Um fjármálastjórn bæjarfélagsins. 80. gr. Fyrir lok desembermánaðar ár hvert skal bæjarstjórn afgreiða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, fyrirtækja og stofnana bæjarfélagsins fyrir næsta ár að undangengnum tveimur umræðum í bæjarstjórn. Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur bæjarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna bæjarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu, bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs í byrjun fjárhagsársins. Bæjarstjórnin skal gæta þess svo sem kostur er að árleg heildarútgjöld bæjarfélagsins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum þess. 81. gr. Fjárhagsáætlun skv. 80. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn bæjarfélagsins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr bæjarsjóði, nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af bæjarstjórninni. Samþykki bæjarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni. 82. gr. Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er bæjarstjórn heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir bæjarstjórn við eina umræðu á bæjarstjórnarfundi, enda hafi breytingartillögurnar verið sendar öllum fulltrúum í bæjarstjórn með dagskrá viðkomandi bæjarstjórnarfundar. 83. gr. Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal bæjarstjórn semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál bæjarfélagsins. Þessi þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir bæjarfélagsins. Skal hún unnin og afgreidd af bæjarstjórn innan eins mánaðar frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar. 84. gr. Strax að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnarinnar skal senda samgönguráðuneytinu fjárhagsáætlun skv. 80. gr. og þriggja ára áætlun skv. 83. gr. Sama á við um endurskoðaða eða breytta áætlun skv. 82. gr. 85. gr. Ársreikningur bæjarfélagsins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir lok aprílmánaðar. Bæjarstjórnin skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endurskoðanda og skoðunarmanna. Bæjarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga bæjarsjóðs, stofnana bæjarfélagsins og fyrirtækja þess eigi síðar en 1. júní ár hvert. Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri skulu árita ársreikninginn. Eintak af ársreikningnum skal senda samgönguráðuneytinu og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna. Samþykkt þessi sem samin er og samþykkt af bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samkvæmt 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 517/2000 með síðari breytingum. Samgönguráðuneytinu, 19. janúar 2009. F. h. r. Hermann Sæmundsson. Stefanía Traustadóttir. |