1. gr. Frá og með 16. júlí til og með 31. júlí 2014 eru strandveiðar bannaðar á svæði A, Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps, sbr. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 360/2014, um strandveiðar fiskveiðiárið 2013/2014. 2. gr. Auglýsing þessi er gefin út með stoð í 2. mgr. 6. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. a. lið 2. gr. laga nr. 82/2013, um breytingu á þeim lögum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Fiskistofu, 11. júlí 2014. Hrefna Gísladóttir, sviðsstjóri veiðiheimildasviðs. Jón Valgeir Guðmundsson. |