Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
1085/2009
|
1. gr. Á 3. gr. verða eftirfarandi breytingar: Í stað: „40.000“ á eftir tegundinni síld (íslensk sumargotssíld) í 1. mgr. komi: 47.000.
2. gr. 3. mgr. orðist svo: Veiðitímabil síldar er frá og með 1. september 2009 til og með 30. apríl 2010. Stjórn veiðanna og skipulag þeirra skal unnið í samráði við Hafrannsóknastofnunina í því skyni að kanna, með sýnatökum, ástand síldarstofnsins. Veiðiskip skulu haga sýnatökum í samráði við Hafrannsóknastofnunina og með þeim hætti sem stofnunin ákveður. 3. gr. Reglugerð þessi er gefin út með stoð í ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, til þess að öðlast gildi 1. janúar 2010 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 29. desember 2009. F. h. r. Steinar Ingi Matthíasson. Hrefna Gísladóttir.
|
B-deild - Útgáfud.:
30. desember 2009
|