1. gr. 2. málsgrein 12. gr. hljóði svo: Á grundvelli skrár um fullnýtingu tekjustofna sveitarfélaga skal reikna út eftirtalin meðaltöl á hvern íbúa: í Reykjavíkurborg, í öllum sveitarfélögum með 12.000 íbúa og fleiri, öðrum en Reykjavíkurborg, í öllum sveitarfélögum með 300-11.999 íbúa, í öllum sveitarfélögum með færri en 300 íbúa.
2. gr. Ákvæði til bráðabirgða breytist og verður svohljóðandi: Við útreikning jöfnunarframlaga, skv. d-lið 7. gr., a- og b-lið 8. gr., sbr. 12. og 13. gr. skulu framlög til þeirra sveitarfélaga þar sem heildarskatttekjur eru a.m.k. 50% umfram landsmeðaltal, þ.e. útsvar og fasteignaskattur á hvern íbúa miðað við fullnýtingu þeirra tekjustofna, vera sem hér segir: Frá og með 1. janúar 2012 nemur skerðing framlaganna 50%. Frá og með 1. janúar 2013 falla framlögin niður.
3. gr. Reglugerð þessi er sett á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Innanríkisráðuneytinu, 27. júlí 2012. Ögmundur Jónasson. Ragnhildur Hjaltadóttir. |