Eignamat í árslok. Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður sbr. framangreint. Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2009, álagningarárið 2010, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár: | | kr. | Mjólkurkýr | | 99.000 | Holdakýr og naut | | 85.000 | Kvígur, 1 ½ árs og eldri | | 63.000 | Geldneyti | | 45.000 | Kálfar, yngri en ½ árs | | 12.000 | Ær og sauðir | | 6.800 | Hrútar | | 11.000 | Gemlingar | | 6.000 | Geitur | | 3.400 | Hross á 14. vetri og eldri | | 16.000 | Hross á 5. - 13. vetri | | 32.000 | Fulltamin reiðhross (á 5. - 13. vetri) | | 130.000 | Önnur nýtanleg reiðhross | | 65.000 | Verðlaunahross (á 5. - 13. vetri) | | 180.000 | Kynbótahestar á 5. - 13. vetri | | 260.000 | Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. - 13. vetri | | 360.000 | Tryppi á 2. - 4. vetri | | 10.000 | Folöld | | 7.000 | Hænsni, eldri en 6 mánaða | | 850 | Varphænsni 6 mánaða og yngri | | 530 | Kjúklingar | | 180 | Endur | | 730 | Gæsir | | 1.400 | Kalkúnar | | 1.900 | Gyltur | | 33.000 | Geltir | | 48.000 | Grísir | | 7.100 | Kanínur | | 1.500 | Minkar: Karldýr | | 5.400 | | Kvendýr | | 3.700 | | Hvolpar | | 0 | Refir: Karldýr og kvendýr | | 6.000 | | Hvolpar | | 0 | Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri | | 3.200 |
Reykjavík, 11. janúar 2010. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. |