Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 385/2015

Nr. 385/2015 24. apríl 2015
REGLUGERÐ
um gildistöku framseldra reglugerða framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 574/2014 um breytingu á III. viðauka og nr. 568/2014 um breytingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 305/2011 að því er varðar mat á nothæfi byggingarvara, sannprófun á stöðugleika þess, og fyrirmyndina sem skal nota við gerð yfirlýsingar um nothæfi byggingarvara.

1. gr.

Gildistaka tiltekinna gerða Evrópusambandsins.

Eftirtaldar reglugerðir sem vísað er til í XXI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 574/2014 frá 21. febrúar 2014 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 305/2011 um fyrirmyndina sem skal nota við gerð yfirlýsingar um nothæfi bygg­ingar­vara, sem vísað er til í II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 21/2015, frá 26. febrúar 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 16/2015, 19. mars 2015, bls. 287.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 568/2014 frá 18. febrúar 2014 um breytingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 305/2011 að því er varðar mat á nothæfi byggingarvara og sannprófun á stöðugleika þess, sem vísað er til í II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 22/2015, frá 26. febrúar 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 16/2015, 19. mars 2015, bls. 293.

2. gr.

Innleiðing tiltekinna gerða Evrópusambandsins.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 574/2014 frá 21. febrúar 2014 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 305/2011 um fyrirmyndina sem skal nota við gerð yfirlýsingar um nothæfi bygg­ingar­vara.
  2. Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 568/2014 frá 18. febrúar 2014 um breytingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 305/2011 að því er varðar mat á nothæfi byggingarvara og sannprófun á stöðugleika þess.

3. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. tölul. 7. gr. laga nr. 114/2014 um byggingarvörur.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 24. apríl 2015.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

B deild - Útgáfud.: 27. apríl 2015