Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1172/2008

Nr. 1172/2008 10. desember 2008
REGLUGERÐ
um lit og einkenni farartækja Landhelgisgæslu Íslands.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um skip og loftför Landhelgisgæslunnar, í eigu ríkissjóðs eða Landhelgis­sjóðs.

Skip og loftför Landhelgisgæslu Íslands skulu auðkennd með skjaldarmerki Íslands á áberandi stað. Skip skulu einkennd nafni en loftför með nafni og skrásetningar­einkennum. Litur þeirra og einkenni skulu vera eins og segir í reglugerð þessari.

Forstjóri Landhelgisgæslunnar ákveður hvort önnur farartæki Landhelgisgæslunnar skuli bera sama auðkenni og lit til samræmis við skip og loftför Landhelgisgæslunnar. Sama á við um leiguloftför og -skip.

2. gr.

Varðskip, sjómælingabátur og léttbátar.

Litur og einkenni skipa Landhelgisgæslunnar skulu vera sem hér segir:

  1. Varðskipin: Yfirbygging skips skal vera grá (litanúmer NCS. S.4005-B20G). Sjólínufleygur svartur (litanúmer NCS. S.9000-N), hæð á stefni 60 sm frá stefni undir fánalitum og endar við afturhluta fánalita. Botn rauður (NCS. S.6020-Y80R) og hæð upp fyrir sjólínu 15 sm. Á yfirbyggingu fyrir neðan brú, frá afturhluta brúar og fram er merkingin „Coast Guard“ svartlituð (NCS. S.9000-N), hæð stafa 50 sm (með leturgerðinni helvetica). Skipsnafnið á hlið yfirbyggingar svartlitað (NCS. S.9000-N) eða krómað, hæð stafa 25 sm. Handrið utan skips, land­festa­pollar og reykháfshattar máluð með svörtum lit (NCS. S.9000-N). Þilförin grá (NCS. S.6502-B). Lendingarhringur á þyrluþilfari hvítur (NCS. S.0500-N) og öryggislína á þyrluþilfari appelsínugul (NCS. S.0585-Y50R) og sjálflýsandi. Kranar, akkeri og bolur máluð með gráum lit (NCS. S.4005-B20G). Fánalitir á síðum eru hvítur (NCS. S.0500-N), breidd randar 47 sm, blár (NCS. S.3560-R80B), breidd randar 215 sm og rauður (NCS. S.1085-Y90R), breidd randar 93 sm. Halli á fánaröndum 120° miðað við efribrún á sjólínu. Orðið „Landhelgisgæslan“ með hástöfum (stafagerð helvetica) málað á síður skipsins í svörtum lit (NCS. S.9000-N), hæð stafa 99 sm. Stafir skyggðir með hvítum lit (NCS. S.0500-N), skygging stafa 3 sm. Akkerið málað grátt (NCS. S.4005-B20G). Merki Landhelgisgæslunnar á stefni. Skjaldarmerki lýðveldisins miðskips á brú. Björgunarbátahylki grá (NCS. S.4005-B20G).
  2. Sjómælingabátur: Yfirbygging skal vera hvít (NCS. S.1502-Y). Neðan við brúar­glugga merkingin „Landhelgisgæslan – Sjómælingar“ með hástöfum í bláum lit (NCS. S.3560-R80B), hæð stafa 16 sm (leturgerð helvetica). Rekkverk, landfesta­pollar, krani og akkerisspil máluð hvít (NCS. S.1002-Y). Þilför og brúarþak máluð græn (NCS. S.6030-G). Síður málaðar hvítar (NCS. S.1002-Y) ofan bryggjulista og ljósgráar (NCS. S.1002-Y) neðan bryggjulista. Fánalitir á síðum (neðan bryggju­lista) skulu vera hvítur (NCS. S.0500-N), breidd randar 12 sm, blár (NCS. S.3560-R80B) breidd randar 75 sm og rauður (NCS. S.1085-Y90R), breidd randar 20 sm. Halli á fánarönd skal vera 120° miðað við neðri brún bryggjulista. Skjaldarmerki lýðveldisins miðskips framan á brú, 25 sm neðan við glugga.
  3. Léttbátar varðskipa: Þeir skulu ýmist vera gráir eða appelsínugulir skv. ákvörðun forstjóra. Þeir skulu merktir Landhelgisgæslunni og viðkomandi varðskipi á áber­andi hátt.

3. gr.

Þyrlur og flugvél Landhelgisgæslu Íslands.

Litur og einkenni loftfara skulu vera sem hér segir:

  1. Þyrlur: Þær skulu hafa hvítan grunnlit (NCS. S.0500-N) og svartan nefhluta/stjórn­klefa (NCS. S.9000-N). Framhluti rauður (NCS. S.1085-Y90R) og sami litur á aftari hluta stéls. Íslenski fáninn fyrir aftan inntök á hreyflum, fánalitir á síðum eru rauður (NCS. S.1085-Y90R), hvítur (NCS. S.0500-N) og blár (NCS. S.3560-R80B). Skjaldarmerkið á aðalhurðum farþegarýmis. Heitið „Landhelgisgæslan“ með svörtum hástöfum (NCS. S.9000-N) fyrir ofan aðalhjól. Þjóðernis- og skrá­setningarmerki skulu vera samkvæmt reglum Flugmála­stjórnar.
  2. Flugvél: Hún skal hafa hvítan grunnlit (NCS. S.0500-N) á skrokki. Íslenski fáninn á miðju stéli og fánalitir á aftari hluta skrokks, hvítur (NCS. S.0500-N), rauður (NCS. S.1085-Y90R) og blár (NCS. S.3560-R80B). Skjaldarmerkið á miðjum skrokki á miðri bláu röndinni. Hreyflar bláir (NCS. S.3560-R80B). Heitið „Land­helgis­gæslan“ með svörtum hástöfum (NCS. S.9000-N) eftir endilöngum skrokki undir gluggaröð, og á ensku orðið ,,Coast Guard“ með svörtum hástöfum (NCS. S.9000-N) á stéli (með leturgerðinni helvetica). Þjóðernis- og skrásetningar­merki skulu vera skv. reglum Flugmálastjórnar.

4. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 25. gr. laga um Landhelgis­gæslu Íslands nr. 52 14. júní 2006, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

5. gr.

Ákvæði til bráðabirgða.

Farartæki Landhelgisgæslunnar, sem ekki eru í samræmi við reglugerðina við setningu hennar, skulu máluð í réttum litum og með rétt merki þegar kemur að nauðsynlegu viðhaldi þeirra.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 10. desember 2008.

Björn Bjarnason.

Skúli Þór Gunnsteinsson.

B deild - Útgáfud.: 23. desember 2008