1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á fjórðu grein um stjórn: Fyrsta mgr. hljóðar svo: Deildarfundur í viðskipta- og hagfræðideild skipar Viðskiptafræðistofnun fimm manna stjórn til þriggja ára í senn og skal einn fulltrúi vera stúdent sem tilnefndur er af félagi framhaldsnema í viðskiptafræði. Þriðja mgr. hljóðar svo: Sé ekki ráðinn forstöðumaður til stofnunarinnar kemur formaður stjórnar fram fyrir hönd stofnunar. 2. gr. Gildistaka o.fl. Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett, að fengnum tillögum háskóladeilda og á grundvelli heimildar í 2. mgr. 13. gr. laga nr. 41/1999 um Háskóla Íslands, öðlast þegar gildi. Háskóla Íslands, 10. maí 2007. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |