Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1110/2008

Nr. 1110/2008 21. nóvember 2008
REGLUGERÐ
um hönnun olíuflutningaskipa.

1. gr.

Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar er að innleiða áætlun um að flýta beitingu krafnanna um tvöfaldan byrðing eða samsvarandi hönnun fyrir olíuflutningaskip með einföldum byrðingi sem kveðið er á um í alþjóðasamningi frá 1973, um varnir gegn mengun sjávar frá skipum, ásamt bókun frá 1978 (MARPOL 73/78).

2. gr.

Innleiðing.

  1. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 417/2002 frá 18. febrúar 2002 um að flýta innleiðingu á kröfum um tvö­faldan byrðing eða sambærilega hönnun fyrir olíuflutningaskip með einföldum byrðingi og um niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 2978/94, sem vísað er til í 56m í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 132/2002 frá 27. september 2002 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samn­ingsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 417/2002 var birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 57 frá 8. nóvember 2003, bls. 247 og verður hluti af reglugerð þessari.
  2. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1726/2003 frá 22. júlí 2003 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 417/2002 frá 18. febrúar 2002 um að flýta innleiðingu á kröfum um tvöfaldan byrðing eða sambærilega hönnun fyrir olíuflutningaskip með einföldum byrðingi, sem vísað er til í 56m í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 77/2004 frá 8. júní 2004 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samn­ing­inn, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1726/2003 var birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 9 frá 22. febrúar 2007, bls. 58 og verður hluti af reglugerð þessari.
  3. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2172/2004 frá 17. desember 2004 um breytingu á reglugerð nr. 417/2002 um að flýta innleiðingu á kröfum um tvöfaldan byrðing eða sambærilega hönnun fyrir olíuflutningaskip með einföldum byrðingi, sem vísað er til í 56m í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2005 frá 29. apríl 2005 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn, með þeim breyt­ingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2172/2004 frá 17. desember 2004 var birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 22 frá 24. apríl 2008, bls. 348 og verður hluti af reglugerð þessari.
  4. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 457/2007 frá 25. apríl 2007 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 417/2002 um að flýta innleiðingu á kröfum um tvöfaldan byrðing eða sambærilega hönnun fyrir olíuflutningaskip með einföldum byrðingi, sem vísað er til í 56m XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 119/2007 frá 28. september 2007 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari og verður hluti af henni.

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 6. mgr. 3. gr. laga nr. 47/2003 um eftirlit með skipum, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 310/2003, um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um hönnun olíu­flutningaskipa, með síðari breytingum.

Samgönguráðuneytinu, 21. nóvember 2008.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 9. desember 2008