Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
864/2008
|
Á fundi sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar 25. ágúst 2008 var samþykkt að staðfesta nýtt deiliskipulag fyrir tvö hús í landi Þórustaða II. Deiliskipulagið tekur til 2,3 ha svæðis sunnan heimreiðar að Þórustöðum 7 sem nær að landamerkjum Áttunnar að sunnan og afmarkast af Eyjafjarðarbraut eystri (829) að vestan. Að austan afmarkast svæðið með beinni línu frá eystri landamerkjum Áttunnar og norður u.þ.b. miðja vegu milli útihúsa og íbúðarhúss Þórustaða 7. Tillaga að deiliskipulagi var auglýst 12. júlí 2007 með athugasemdafresti til 6. september 2007. Engar athugasemdir bárust við tillöguna. Auglýsa þurfti tillöguna aftur og var það gert 11. febrúar 2008. Athugasemdafrestur rann út 25. mars 2008. Engar athugasemdir bárust við tillöguna við endurauglýsingu. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna á fundi sínum hinn 1. apríl 2008 og staðfesti sveitarstjórn afgreiðslu nefndarinnar á fundi hinn 8. apríl sl. Sótt var um undanþágu frá skipulagsreglugerð nr. 400/1998, gr. 4.16.2. vegna fjarlægðar bygginga frá stofn- og tengivegum. Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um. Skipulagið öðlast þegar gildi. Eyjafjarðarsveit, 27. ágúst 2008. Guðmundur Jóhannsson sveitarstjóri.
|
B-deild - Útgáfud.:
11. september 2008
|