1. gr. Fjórða grein breytist og verður svohljóðandi: Háskólaráð skipar stofnuninni fimm manna stjórn, og jafnmarga til vara. Gætt skal að ákjósanlegum tengslum við fræðasvið og aðra starfsemi háskólans. Stjórnin er skipuð til þriggja ára í senn og skiptir sjálf með sér verkum. 2. gr. Við 6. gr. um verkefni stjórnar bætist eftirfarandi: Stjórn er heimilt að setja á fót fagráð innan stofnunarinnar, með fulltrúum frá aðildarfélögum háskólanna og fleiri samtökum. Um verkefni og skipan fagráðs gilda starfsreglur sem settar eru af stjórn stofnunarinnar. 3. gr. Í stað orðsins „stjórn“ í 3. mgr. 1. gr. kemur: fagráð. 4. gr. Gildistaka. Reglur þessar eru settar af háskólaráði skv. heimild í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008, um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi. Háskóla Íslands, 5. mars 2009. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |