Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 612/2010

Nr. 612/2010 19. júlí 2010
AUGLÝSING
um framlengingu á skipan fjárhaldsstjórnar fyrir Sveitarfélagið Álftanes.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur ákveðið að skipun fjárhaldsstjórnar fyrir Sveitarfélagið Álftanes, sbr. auglýsing nr. 100/2010 sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda þann 8. febrúar 2010, verði framlengd til 1. nóvember 2010.

Ákvörðun þessi, sem byggir á 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 19. júlí 2010.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 22. júlí 2010