1. gr. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 87/2007 frá 6. júlí 2007, gildir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB), nr. 1781/2006 frá 15. nóvember 2006, um upplýsingar um greiðanda sem fylgja skulu við millifærslu fjármuna, að undanskildum ákvæðum 6. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar, hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af IX. viðauka við EES-samninginn um fjármálaþjónustu, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins. 2. gr. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar er birt á bls. 23 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 60, 14. árgangi og EB-gerðin í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11, 16. árgangi, bls. 180-191. 3. gr. Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1781/2006 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum. 4. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 28. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 64/2006 og öðlast þegar gildi. Viðskiptaráðuneytinu, 3. apríl 2009. Gylfi Magnússon. Jónína S. Lárusdóttir. |