Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 34/2010

Nr. 34/2010 11. janúar 2010

AUGLÝSING
fjármálaráðherra um álagningu opinberra gjalda á árinu 2010.

1. gr.

Ríkisskattstjóri skal eigi síðar en 28. júlí 2010 hafa lokið álagningu opinberra gjalda á menn. Álagningu lögaðila með sjálfstæða skattaðild skal vera lokið eigi síðar en 28. októ­ber 2010. Álagningu á lögaðila sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaksárið skal lokið eigi síðar en sex mánuðum eftir að því reiknings­ári lýkur.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 11. janúar 2010. 

F. h. r.
Guðmundur Árnason.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.


B-deild - Útgáfud.: 25. janúar 2010

  Til baka