Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
1033/2006
|
1. gr. Sorphirðugjald í þéttbýli þar sem sorphirða fer fram: Árlegt gjald miðað við ílát er sem hér segir: Sorphirðugjald á ílát, íbúðarhúsnæði kr. 10.000 Sorphirðugjald á ílát, sumarhús kr. 3.500 Gjald þetta er innheimt samhliða fasteignagjöldum og á sömu gjalddögum. 2. gr. Árlegt sorpurðunargjald frá atvinnurekstri og húsnæði í dreifbýli svo og öðru húsnæði og stofnunum, sem nota gáma og/eða hafa aðgang að urðunar- og söfnunarsvæðum sveitarfélagsins. Fyrirtækjum er raðað í flokka samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar miðað við magn og umfang úrgangs. Gjaldið er sem hér segir: I. | Flokkur | kr. | | | 1 | 8.000 | | | 2 | 43.000 | | | 3 | 129.000 | | | 4 | 258.000 | | | 5 | 516.000 |
Gjalddagi er 1. júní ár hvert. Dráttarvextir reiknast 30 dögum eftir gjalddaga. II. | | kr. | | | Bújarðir eða býli með atvinnustarfsemi | 9.500 | | | Þjónustubýli | 4.500 | | | Sumarbústaðir | 3.500 |
Gjald þetta er innheimt samhliða fasteignagjöldum og á sömu gjalddögum. 3. gr. Kvörtun vegna álagningar eða innheimtu skal beina til tæknideildar sveitarfélagsins. 4. gr. Til tryggingar á greiðslu skv. gjaldskrá um sorphirðu og urðun í Sveitarfélaginu Skagafirði er lögveðréttur í viðkomandi fasteign í tvö ár eftir gjalddaga. Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar 30. nóvember 2006, er sett skv. ákvæði 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 með síðari breytingu svo og samþykkt fyrir sorphirðu í Sveitarfélaginu Skagafirði og öðlast gildi þann 1. janúar 2007. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 45/2006. Sauðárkróki, 30. nóvember 2006. Guðmundur Guðlaugsson sveitarstjóri.
|
B-deild - Útgáfud.:
18. desember 2006
|