Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1116/2013

Nr. 1116/2013 12. desember 2013
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð nr. 163, 30. maí 1973, um hvalveiðar með síðari breytingum.

1. gr.

2. mgr. 1. gr. orðist svo:

Leyfi til veiða á hrefnu árin 2014, 2015, 2016, 2017 og 2018 skal veita þeim íslensku skipum, sem eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila, sem hafa stundað hrefnu­veiðar í atvinnuskyni á árunum 2006-2008 eða félaga sem þeir hafa stofnað um slíka útgerð. Einnig skal veita leyfi þeim íslensku skipum sem eru í eigu eða leigu einstaklinga sem að mati ráðherra uppfylla neðangreind skilyrði til að fá leyfi til hrefnuveiða. Eingöngu þeim skipum sem sérútbúin eru til veiða á stórhvölum er heimilt að taka þátt í veiðum á langreyði árin 2014, 2015, 2016, 2017 og 2018.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 4. gr. laga nr. 26 3. maí 1949, um hvalveiðar, til að öðlast þegar gildi. Sjá jafnframt viðauka sem birtur er sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. desember 2013.

Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 13. desember 2013