Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 904/2009

Nr. 904/2009 26. október 2009

REGLUGERÐ
um aðgerðir til stuðnings við starfsemi Alþjóðlega sakamáladómstólsins fyrir fyrrum lýðveldi Júgóslavíu.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Með reglugerð þessari eru sett ákvæði um aðgerðir til stuðnings við starfsemi Alþjóðlega sakamáladómstólsins fyrir fyrrum lýðveldi Júgóslavíu sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.

Þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins varðandi Bosníu og Hersegóvínu, Króatíu og Serbíu og Svartfjallaland byggja á sameiginlegri afstöðu ráðsins 2004/293/CFSP frá 30. mars 2004 ásamt síðari breytingum, uppfærslum og viðbótum: sameiginleg afstaða 2004/694/CFSP og 2008/223/CFSP, ákvarðanir ráðsins 2008/732/CFSP og 2008/733/CFSP og sameiginleg afstaða 2008/761/CFSP og 2009/164/CFSP, auk 1997/193/CFSP (Bosnía og Hersegóvína), 2000/696/CFSP og 2001/155/CFSP (Serbía og Svartfjallaland).

Gerðir Evrópusambandsins, þ.m.t. uppfærðir listar yfir aðila og hluti sem þvingunar­aðgerðir beinast að eða varða, eftir því sem við á, eru birtar á vefsetri þess: http://ec.europa.eu/external_relations/cfsp/sanctions/index_en.htm.

Ákvæði reglugerðar nr. 119/2009 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skulu gilda um framkvæmd reglugerðar þessarar.

2. gr.

Landgöngubann.

Einstaklingum, sem tilgreindir eru í I. viðauka, er óheimilt að koma til landsins eða hafa hér viðkomu, sbr. 1997/193/CFSP og síðari breytingar, uppfærslur og viðbætur.

3. gr.

Frysting fjármuna.

Frysta skal fjármuni og efnahagslegan auð í eigu aðila sem tilgreindir eru í II. viðauka, sbr. 2. gr. 2000/696/CFSP og síðari breytingar, uppfærslur og viðbætur.

4. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum sem gripið hefur verið til á grundvelli gerða Evrópusambandsins, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum.

5. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

6. gr.

Heimild.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunar­aðgerða nr. 93/2008.

7. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 26. október 2009.

Össur Skarphéðinsson.

Einar Gunnarsson.

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)


B-deild - Útgáfud.: 10. nóvember 2009

  Til baka