Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 451/2007

Nr. 451/2007 7. maí 2007
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um sakaskrá ríkisins, nr. 569/1999.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 3. gr.:

  1. B-liður orðast svo: Dómi eða viðurlagaákvörðun í máli vegna brots á öðrum lögum, nema umferðarlögum og reglugerðum settum samkvæmt þeim, þegar ákveðin er fangelsisrefsing, ákvörðun refsingar er frestað eða ákveðin er réttinda- eða leyfissvipting eða dæmd sekt 50.000 krónur eða hærri.
  2. Nýr stafliður bætist við, er verður d-liður, og breytist röð eftirfarandi stafliða í samræmi við það, svohljóðandi: Dómi, viðurlagaákvörðun eða lögreglustjórasátt í máli vegna brots á umferðarlögum og reglugerðum settum samkvæmt þeim þegar sekt er hærri en 100.000 krónur eða brot hefur leitt til réttinda- eða leyfis­sviptingar.
  3. E-liður orðast svo: Sektargerð lögreglustjóra eða tollstjóra í máli vegna brots á öðrum lögum þegar sekt er 50.000 krónur eða hærri eða brot hefur leitt til réttinda- eða leyfissviptingar.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 2. mgr. 19. gr. laga um meðferð opinberra mála, nr. 19 26. mars 1991, öðlast þegar gildi.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 7. maí 2007.

Björn Bjarnason.

Gunnar Narfi Gunnarsson.

B deild - Útgáfud.: 23. maí 2007