Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 211/2015

Nr. 211/2015 17. febrúar 2015
SAMÞYKKT
um afgreiðslur umhverfisráðs Dalvíkurbyggðar.

1. gr.

Á grundvelli heimildar í 1. mgr. 7. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki hefur sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar ákveðið að í sveitarfélaginu starfi byggingarnefnd. Umhverfisráð Dalvíkur­byggðar fer með verkefni byggingarnefndar í samræmi við ákvæði samþykktar nr. 206/2013 um stjórn Dalvíkurbyggðar.

2. gr.

Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis af hálfu byggingarfulltrúa samkvæmt III. kafla laga um mannvirki er að umhverfisráð hafi fjallað um og samþykkt byggingarleyfisumsóknina.

3. gr.

Byggingarfulltrúi skal hafa samráð við umhverfisráð um hvert það mál sem hann telur að varði verksvið ráðsins.

4. gr.

Um málsmeðferð gilda að öðru leyti ákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, laga nr. 160/2010 um mannvirki, skipulagslaga nr. 123/2010, samþykktir um stjórn og fundarsköp Dalvíkurbyggðar og stjórnsýslulaga nr. 37/1993, eftir því sem við á.

5. gr.

Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur sett samkvæmt ákvæðum 7. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 17. febrúar 2015.

F. h. r.

Vigdís Sigurðardóttir.

Hafsteinn Pálsson.

B deild - Útgáfud.: 3. mars 2015