1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar: Í stað „350.000 kr.“ í 5. mgr. kemur: 370.000 kr. Í stað „94.938 kr.“ í 6. mgr. kemur: 97.786 kr. Í stað „131.578 kr.“ í 6. mgr. kemur: 135.525 kr.
2. gr. Í stað „57.415 kr.“ í 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar kemur: 59.137 kr. 3. gr. Í stað „131.578 kr.“ í 2. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar kemur: 135.525 kr. 4. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 7. mgr. 13. gr., 5. mgr. 18. gr., 5. mgr. 19. gr. og 35. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og gildir frá 1. janúar 2014. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1207/2012, um breytingu á reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Velferðarráðuneytinu, 15. janúar 2014. Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra. Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir. |