Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 627/2012

Nr. 627/2012 13. júlí 2012
REGLUGERÐ
um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta skv. 1. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116, 10 ágúst 2006, um stjórn fiskveiða.

1. gr.

Þar sem takmarkaðar innfjarðarækjuveiðar voru stundaðar á Arnarfirði og engar innfjarðarrækjuveiðar voru stundaðar á Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfandaflóa, Öxarfirði, Eldeyjarsvæði og Norðurfjörðum Breiðafjarðar á fiskveiðiárinu 2011/2012, skal á fiskveiðiárinu 2012/2013 úthluta aflamarki sem nemur samtals 698 þorskígildislestum til báta, sem hafa hlutdeild í innfjarðarækju á áðurgreindum svæðum.

Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla rækjuvertíðanna 1996/1997 - 2005/2006 að frádregnum afla fiskveiðiársins 2011/2012. Verðmætastuðullinn fyrir rækju er 0,52, miðað við þorskígildi og koma 89 lestir í hlut báta frá Arnarfirði, 148 lestir í hlut báta við Húnaflóa, 153 lestir í hlut báta við Skagafjörð, 70 lestir í hlut báta við Skjálfandaflóa, 201 lest í hlut báta við Öxarfjörð, 23 lestir í hlut báta á Eldeyjarsvæði og 14 lestir í hlut báts í Norðurfjörðum Breiðafjarðar.

2. gr.

Þar sem engar hörpudisksveiðar voru stundaðar í Arnarfirði, Húnaflóa, Breiðafirði og Hvalfirði á fiskveiðiárinu 2011/2012 skal á fiskveiðiárinu 2012/2013 úthluta aflamarki sem samtals nemur 983 þorskígildistonnum til báta, sem aflahlutdeild hafa í hörpudiski á áðurgreindum svæðum.

Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla áranna 1998 til 2007. Verðmætastuðullinn fyrir hörpudisk er 0,32, miðað við þorskígildi, og koma 7 lestir í hlut báta frá Arnarfirði, 33 lestir í hlut báta við Húnaflóa, 919 lestir í hlut báta við Breiðafjörð og 24 lestir í hlut báta við Hvalfjörð.

3. gr.

Úthluta skal uppbótum til einstakra báta á grundvelli þeirrar aflahlutdeildar sem þeir hafa í rækju og skel á viðkomandi svæði og miðast við aflahlutdeild eins og hún er 1. ágúst 2012. Uppbæturnar skulu skiptast á eftirgreindar tegundir: Þorsk, ýsu, ufsa og steinbít, í hlutfalli við leyfilegt heildarmagn í þessum tegundum.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 3. mgr. 10. gr. laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. september 2012.

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. júlí 2012.

Steingrímur J. Sigfússon.

Jóhann Guðmundsson.

B deild - Útgáfud.: 17. júlí 2012