1. gr. III. liður 15. gr., um inntökuskilyrði, orðast svo: Góður árangur í grunnnámi er skilyrði fyrir inntöku í MS-nám. Almennt er krafist BA- eða BS-prófs í hagfræði eða annars sambærilegs prófs. Nemendur sem hafa lokið BA-prófi, BS-prófi í hagfræði með viðunandi árangri eða sambærilegu prófi í öðrum greinum geta, að undangengnu mati deildarinnar, fengið inngöngu í 60 eininga diplómanám við hagfræðideild. Meistaranámsnefnd ákveður hvaða námskeið hver nemandi þarf að taka á grundvelli fyrra náms og reynslu umsækjanda. Nemendur sem ná góðum árangri í námskeiðum diplómanámsins geta sótt um inngöngu í MS-nám. Séu slíkir nemendur teknir í MS-nám, kemur til greina að hluti námskeiða í diplómanámi verði metinn sem hluti af námi til MS-prófs, þó aldrei þau námskeið diplómanáms sem nemanda er falið að taka vegna skorts á nauðsynlegum grunni í rekstrarhagfræði, þjóðhagfræði, stærðfræði eða tölfræði. Gerð skal grein fyrir matinu í bréfi til umsækjenda vegna inntöku. Meistaranámsnefnd metur hvert tilvik í samræmi við verklagsreglur um mat á fyrra námi. Deildin getur sett frekari reglur um mat námskeiða. 2. gr. Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar með heimild í 3. mgr. 18. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Reglurnar hafa verið samþykktar af hagfræðideild og stjórn félagsvísindasviðs, að fenginni umsögn Miðstöðvar framhaldsnáms, sbr. 66. og 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi. Háskóla Íslands, 18. janúar 2012. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |