Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 807/2009

Nr. 807/2009 23. september 2009
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 206/2007 um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

3. gr. orðist svo ásamt fyrirsögn:

Aðlögunarfrestur.

Þrátt fyrir ákvæði 6. gr. frestast gildistaka:

 

a)

ákvæða í I. viðauka (M-hluta) í fylgiskjali I, að því er varðar loftför, sem ekki eru notuð í flutningaflugi, til 28. september 2009;

 

b)

eftirfarandi ákvæða, þar sem fram koma kröfur um að fara eigi eftir III. viðauka (66. hluta), að því er varðar loftför, sem eru ekki notuð í flutningaflugi, að undan­skildum stórum loftförum, til 28. september 2010:

  

- g-lið M.A.606 og 2. lið b-liðar M.A.801 við I. viðauka (M-hluta) í fylgiskjali I;

  

- g- og h-lið 145.A.30 við II. viðauka (145. hluta) í fylgiskjali I.

Að því er varðar loftför, sem eru ekki notuð í flutningaflugi, skulu öll lofthæfi­stað­festingar­vottorð eða sambærileg skjöl, sem gefin eru út í samræmi við almennar reglur um lofthæfi og voru í gildi 28. september 2008, vera í gildi uns gildistími þeirra er útrunninn eða til 28. september 2009, hvort sem gerist fyrst. Þegar gildistími loft­hæfi­stað­festingar­vottorðs er útrunninn er Flugmálastjórn Íslands heimilt að gefa það aftur út, eða sambærilegt skjal, tvisvar sinnum, til eins árs í senn, þó ekki lengur en til 28. september 2011. Frekari endurútgáfa eða framlenging er ekki leyfileg.

2. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerð fram­kvæmda­stjórnar­innar (EB) nr. 1056/2008 frá 27. október 2008 um breytingu á reglu­gerð (EB) nr. 2042/2003 um áframhaldandi lofthæfi loftfara og annarra fram­leiðslu­vara, hluta og búnaðar til flugs og um samþykki fyrir fyrirtækjum og starfs­fólki á þessu sviði, birt sem fylgiskjal III við reglugerð þessa, samkvæmt ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka EES-samningsins nr. 70/2009 frá 29. maí 2009.

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 28. gr. og 28. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 23. september 2009.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 25. september 2009