Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 908/2008

Nr. 908/2008 23. september 2008
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 368/2000, um söfnun, endurvinnslu og skilagjald á einnota umbúðir fyrir drykkjarvöru.

1. gr.

4. ml. 1. gr. orðist svo:

Skilagjald skal nema 11,21 kr. án virðisaukaskatts á hverja umbúðaeiningu.

2. gr.

2. gr. orðist svo:

Umsýsluþóknun skal leggja til viðbótar skilagjaldi á hverja umbúðaeiningu úr stáli, gleri og plastefni og skal fjárhæð hennar án virðisaukaskatts vera 3,96 kr. á umbúðir úr stáli, 2,91 kr. á umbúðir úr gleri stærri en 500 ml, 2,09 kr. á umbúðir úr gleri 500 ml og minni, 2,09 kr. á umbúðir úr lituðu plastefni og 0,86 kr. á umbúðir úr ólituðu plastefni.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 4. gr. laga nr. 52/1989 um ráðstafanir gegn umhverfis­mengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur og öðlast gildi 1. október 2008.

Umhverfisráðuneytinu, 23. september 2008.

Þórunn Sveinbjarnardóttir.

Sigríður Auður Arnardóttir.

B deild - Útgáfud.: 26. september 2008