Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 464/2012

Nr. 464/2012 14. maí 2012
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 602/2008 um kröfur er varða verklagsreglur og flugáætlanir innan samevrópska loftrýmisins.

1. gr.

4. gr. orðast svo:

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (EB), með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 1033/2006 frá 4. júlí 2006 um kröfur er varða verklagsreglur og flugáætlanir á undirbúningsstigi flugs innan samevrópska loftrýmisins, sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 134/2006 frá 27. október 2006. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 77, 18. desember 2008, bls. 80;
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 929/2010 frá 18. október 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1033/2006 að því er varðar ákvæði Alþjóða­flugmálastofnunarinnar sem um getur í 1. mgr. 3. gr., sbr. ákvörðun sameigin­legu nefndarinnar nr. 152/2011 frá 2. desember 2011. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 12, 1. mars 2012, bls. 305.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr. og 76. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 14. maí 2012.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 30. maí 2012