Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 126/2011

Nr. 126/2011 9. febrúar 2011

AUGLÝSING
(IV) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 999 frá 17. desember 2010 um úthlutun byggða­kvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2010/2011 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:

Norðurþing.

Ákvæði reglugerðar nr. 999 frá 17. desember 2010 gilda um úthlutun byggðakvóta Húsavíkur, Kópaskers og Raufarhafnar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

 

a)

Ákvæði b-liðar 1. gr. breytist og verður: Eru skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. febrúar 2011.

 

b)

Ákvæði c-liðar 1. gr. breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 1. febrúar 2011.

 

c)

Upphaf 6. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Fiskiskipum er skylt að landa til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu ... o.s.frv.

 

d)

Brott fellur setningin: Einnig er það skilyrði fyrir úthlutun að ekki hafi verið flutt meira aflamark í þorskígildum talið á fiskveiðiárinu 2010/2011, frá viðkomandi fiskiskipum en flutt hefur verið til þeirra þegar afhending aflamarks á sér stað.

Sveitarfélagið Skagafjörður.

Ákvæði reglugerðar nr. 999 frá 17. desember 2010 gilda um úthlutun byggðakvóta fiskveiðiársins 2010/2011 fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð með eftirfarandi viðauka/breyt­ingum:

 

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. orðist þannig:

   

  Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlagsins, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem varð eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal fara fram til einstakra fiskiskipa, undir 50 brúttótonnum, sem uppfylla skilyrði 1. gr., og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við landaðan afla í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2009 til 31. ágúst 2010.

 

b)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. orðist þannig:

   

  Fiskiskipum er skylt að landa innan hlutaðeigandi byggðarlaga á tímabilinu frá 1. júlí 2010 til 31. ágúst 2011 afla sem nemur, í þorskígildum talið, jöfnu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari, þar af skal að lágmarki 30% fara til vinnslu í sveitarfélaginu, og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu.

Sveitarfélagið Vogar.

Ákvæði reglugerðar nr. 999 frá 17. desember 2010 gilda um úthlutun byggðakvóta fiskveiðiársins 2010/2011 fyrir Sveitarfélagið Voga með eftirfarandi viðauka/breytingum:

 

a)

Ákvæði 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Byggðakvóta Voga alls 37 þorskígildistonnum skal skipta jafnt milli fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 9. febrúar 2011.

F. h. r.

Arndís Á. Steinþórsdóttir.

Hinrik Greipsson.


B deild - Útgáfud.: 10. febrúar 2011