Skilafrestir.
1. gr.
Framtölum manna, þ.m.t. þeirra sem látist hafa á árinu 2014, skal skila rafrænt á vefnum skattur.is eða á pappír til ríkisskattstjóra eigi síðar en 20. mars 2015.
Unnt er að sækja um aukinn skilafrest á vefnum skattur.is. Lengdum skilafresti lýkur dagana 30. mars til 31. apríl 2015, samkvæmt slembidreifingu.
2. gr.
Framtalsskyldir lögaðilar, þ.m.t. dánarbú þar sem skiptum hafði ekki verið formlega lokið í árslok 2013, skulu skila framtali rafrænt á vefnum skattur.is. Í undantekningartilfellum er heimilt að skila á pappír til næstu starfsstöðvar ríkisskattstjóra. Skila skal eigi síðar en 31. maí 2015. Gera skal grein fyrir rekstri sameignarfélaga, sem eru ósjálfstæðir skattaðilar, með framtölum eigenda.
3. gr.
Þeir lögaðilar, sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaksárið, skulu skila framtali rafrænt á vefnum skattur.is eða í undantekningartilfellum á pappír til næstu starfsstöðvar ríkisskattstjóra eigi síðar en 5 mánuðum eftir lok reikningsárs.
4. gr.
Þeir framteljendur, sem af óviðráðanlegum ástæðum, svo sem veikindum eða vegna tilfallandi dvalar erlendis, geta ekki skilað framtali sínu innan ofangreindra fresta, skulu skila framtali sínu svo fljótt sem auðið er, rafrænt á vefnum skattur.is, og gera grein fyrir ástæðum síðbúinna skila með athugasemd á framtalinu.
Form og skilamáti framtala.
5. gr.
Menn skulu gera grein fyrir tekjum sínum á árinu 2014 og eignum í lok þess árs með eftirfarandi hætti:
|
a)
|
Á rafrænu skattframtali 2015 (RSK 1.01) á þjónustusíðu á vefnum skattur.is.
|
|
b)
|
Með dulrituðu og undirrituðu skeyti úr framtalsforritum 2015, sem vottuð hafa verið af ríkisskattstjóra.
|
|
c)
|
Á skattframtali 2015 (RSK 1.01), sem ríkisskattstjóri hefur gefið út á pappír.
|
|
d)
|
Á skattframtali 2015 (erlendir starfsmenn) RSK 1.10 (enska) eða RSK 1.13.
|
Skattframtali manns í atvinnurekstri skal fylgja ársreikningur auk tilskilinna fylgiskjala, sbr. 6. gr.
6. gr.
Menn, sem stunduðu atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi á árinu 2014, skulu með skattframtali sínu 2015 gera grein fyrir tekjum sínum og eignum tengdum rekstri á neðangreindum eyðublöðum er fylgja skulu skattframtali 2015:
|
a)
|
Séu tekjur (velta) undir kr. 1.000.000 og eignir í rekstri engar eða óverulegar og framteljandi var jafnframt ekki með virðisaukaskattsnúmer á árinu 2014 skal skila eyðublaðinu RSK 4.10.
|
|
b)
|
Sé velta á bilinu kr. 1.000.000 til kr. 20.000.000 skal skila eyðublaðinu RSK 4.11 ásamt viðeigandi fylgiskjölum, enda sé ekki um að ræða samrekstur, fráviksaðferðir í reikningshaldi eða byggingastarfsemi, þar sem beitt er verklokaaðferð. Réttilega útfyllt eyðublað RSK 4.11, sem uppfyllir jafnframt öll skilyrði III. kafla laga um bókhald, telst fullnægjandi ársreikningur í þessu tilliti. Sé eðli starfseminnar hins vegar þannig að sundurliðun á tekjum, gjöldum, eignum og skuldum samkvæmt RSK 4.11 gefi ekki skýra mynd af henni, s.s. sundurliðun helstu tekna- og kostnaðarliða, skal sérstakur ársreikningur fylgja framtali ásamt RSK 4.11.
|
|
c)
|
Sé velta yfir kr. 20.000.000 eða um er að ræða samrekstur, fráviksaðferðir í reikningshaldi eða byggingastarfsemi, þar sem beitt er verklokaaðferð, skal skila eyðublaðinu RSK 1.04 ásamt ársreikningi og viðeigandi fylgiskjölum.
|
7. gr.
Vegna búrekstrar skulu neðangreind eyðublöð fylgja skattframtali manns eða lögaðila:
|
a)
|
Skattframtali manns skal fylgja eyðublaðið RSK 4.08, í stað RSK 1.04 eða RSK 4.11.
|
|
b)
|
Skattframtali lögaðila RSK 1.04, sbr. 8. gr., skal fylgja eyðublaðið RSK 4.07 ef um rafræn framtalsskil er að ræða. Ef skattframtali lögaðila er skilað á pappír skal fylgja útfylltur bústofnshluti landbúnaðarskýrslu RSK 4.08, ásamt framtali vegna búnaðargjalds RSK 1.09.
|
8. gr.
Lögaðilar skulu gera grein fyrir tekjum sínum á árinu 2013 og eignum í lok þess árs með eftirfarandi hætti:
|
a)
|
Á rafrænu skattframtali 2015 (RSK 1.04) á þjónustusíðu á vefnum skattur.is.
|
|
b)
|
Með dulrituðu og undirrituðu skeyti úr framtalsforritum 2015, sem vottuð hafa verið af ríkisskattstjóra.
|
|
c)
|
Í sérstökum undantekningartilfellum að þessu sinni, enda sé framteljenda með öllu ókleift að telja fram rafrænt, þá er heimilt að telja fram á skattframtali rekstraraðila 2015 (RSK 1.04), sem ríkisskattstjóri hefur gefið út á pappír.
|
|
d)
|
Lögaðilar, sem telja sig undanþegna skattskyldu skv. 4. tölul. 4. gr. tekjuskattslaga, eiga þrátt fyrir það að að skila skattframtali 2015 í samræmi við ofanritað.
|
|
e)
|
Lögaðilar, sem undanþegnir eru skattskyldu skv. 4. gr. tekjuskattslaga, þó að frátöldum aðilum skv. 4. tölul. 4. gr., sbr. d-lið, eiga ekki að skila skattframtali lögaðila RSK 1.04 vegna tekjuskatts, en beri þeim að standa skil á öðrum sköttum og gjöldum við álagningu 2015, þá skal það gert í rafrænum skilum á eyðublaðinu RSK 1.06 eða á viðeigandi eyðublöðum á pappír vegna tryggingagjalds (RSK 1.05), fjármagnstekjuskatts (RSK 1.07), eða búnaðargjalds (RSK 1.09).
|
Ársreikningi og öðrum tilskildum fylgiskjölum lögaðila skal skilað á sama tíma og skattframtali og með sama hætti og því er skilað, þ.e. rafrænum eða á pappír.
9. gr.
Auglýsing þessi er birt skv. 90. og 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og tekur þegar gildi.
Reykjavík, 30. desember 2014.
Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri.
|