1. gr. Kaflar I, III, IV, V, VI og viðauki 1 falla brott. Þá fellur jafnframt brott 3. mgr. 3. gr., 4. gr. og 2., 3., 4. og 5. mgr. 5. gr. í kafla II. 2. gr. Ný 1. mgr. 5. gr. hljóðar svo: Til að öðlast löggildingu skal fyrirtækið uppfylla viðeigandi kröfur í reglugerðum nr. 103/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 852/2004 um hollustuhætti sem varða matvæli, með síðari breytingum og nr. 104/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 853/2004 um sérstakar reglur um hollustuhætti sem varða matvæli úr dýraríkinu, með síðari breytingum. 3. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 96/1997, um slátrun og sláturafurðir, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 22. maí 2012. F. h. r. Sigurgeir Þorgeirsson. Baldur P. Erlingsson. |