Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 162/2010

Nr. 162/2010 19. febrúar 2010

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um jöfnun tekjutaps sveitarfélaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti, nr. 80/2001, með síðari breytingum.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða er hljóðar svo:

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal í febrúar 2010 gera áætlun um útreiknað framlag hvers sveitarfélags árið 2010.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr. skal Jöfnunarsjóður sveitarfélaga á árinu 2010 greiða viðkomandi sveitarfélagi framlag fyrirfram sem nemur 60% af áætluðu framlagi, sbr. 1. mgr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 19. febrúar 2010.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


B-deild - Útgáfud.: 25. febrúar 2010

  Til baka