Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 914/2010

Nr. 914/2010 26. nóvember 2010
AUGLÝSING
um framlengingu á skipan fjárhaldsstjórnar fyrir Sveitarfélagið Álftanes.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur ákveðið að skipun fjárhaldsstjórnar fyrir Sveitarfélagið Álftanes, sbr. auglýsingu nr. 100/2010 sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda þann 8. febrúar 2010, sbr. auglýsingu 612/2010, sbr. auglýsingu 828/2010, verði framlengd til 1. febrúar 2011.

Ákvörðun þessi, sem byggir á 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 26. nóvember 2010.

Ögmundur Jónasson.

Hermann Sæmundsson.

B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2010