1. gr. Frá og með 21. ágúst 2014, er felld niður línuívilnun í þorski, sem ákveðin er í reglugerð nr. 664/2010, um línuívilnun. 2. gr. Auglýsing þessi er gefin út með stoð í reglugerð nr. 664/2010, um línuívilnun. Auglýsingin öðlast þegar gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 18. ágúst 2014. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Jóhann Guðmundsson. |
Baldur P. Erlingsson. |