Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 7/2009

Nr. 7/2009 4. mars 2009
LÖG
um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, með síðari breytingum.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.
    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:
    Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. og 3. mgr. 27. gr. laganna skal umsókn um kosningarrétt skv. b- lið 2. mgr. 1. gr. sem berst Þjóðskrá í síðasta lagi 25. mars 2009 gilda frá dagsetningu bréfs hennar um að umsækjandi skuli tekinn á kjörskrá. Að öðru leyti fer um kosningarréttinn skv. 2. gr. laganna.
    Fullnægjandi umsókn um að verða tekinn á kjörskrá sem berst Þjóðskrá eftir 25. mars 2009 gildir frá 1. desember 2009.
    Umsókn um að verða tekinn á kjörskrá sem barst Þjóðskrá eftir 1. desember 2008 og var fullnægjandi skal nú gilda frá gildistöku þessa ákvæðis. Að öðru leyti fer um kosningarréttinn skv. 2. gr. laganna. Þjóðskrá tilkynnir umsækjanda þessa breytingu og hlutaðeigandi sveitarstjórn.

2. gr.
    Lög þessi öðlast þegar gildi.

3. gr.
    Lög þessi falla úr gildi 1. desember 2009.

Gjört í Reykjavík, 4. mars 2009.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Ragna Árnadóttir.

A deild - Útgáfud.: 4. mars 2009