Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti 10. janúar 2008 breytingu á deiliskipulaginu „Iðnaðar- og athafnasvæði vestan Kvernár“. Deiliskipulagsbreytingin tekur til austasta hluta gildandi deiliskipulags fyrir iðnaðar- og athafnasvæðið vestan Kvernár. Felur það í sér, að skipulagssvæðið er stækkað lítillega til suðurs í suðausturhorni svæðisins og úthlutaðar metralóðir innan skipulagsmarka eru skilgreindar sem afmarkaðar lóðir. Nýtingarhlutfall helst óbreytt nema á Ártúni 5. Aðrir skilmálar og greinargerð gildandi deiliskipulags eru óbreytt. Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi. Skipulags- og byggingarfulltrúi Grundarfjarðarbæjar, 5. febrúar 2008. Hjörtur Hans Kolsöe. |