Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 926/2010

Nr. 926/2010 29. nóvember 2010
REGLUGERÐ
um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 267/2010 frá 24. mars 2010 um beitingu 3. mgr. 101. gr. sáttmálans gagnvart tilteknum flokkum samninga, ákvarðana og samstilltra aðgerða á sviði vátrygginga.

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 52/2010 frá 30. apríl 2010 gildir eftirtalin EB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka (Samkeppni) við EES-samninginn, bókun I um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samn­ingsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 267/2010 frá 24. mars 2010 um beit­ingu 3. mgr. 101. gr. sáttmálans gagnvart tilteknum flokkum samninga, ákvarðana og samstilltra aðgerða á sviði vátrygginga.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 267/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi EB nr. 56/2010, 7. október 2010, bls. 195.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 52/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 37/2010, 15. júlí 2010, bls. 27.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2004, öðlast þegar gildi.

Með þessari reglugerð fellur úr gildi reglugerð nr. 825/2006 um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 358/2003 frá 27. febrúar 2003 um beitingu 3. mgr. 81. gr. sáttmálans gagnvart tilteknum flokkum samninga, ákvarðana og samstilltra aðgerða á sviði vátrygginga.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 29. nóvember 2010.

Árni Páll Árnason.

Kjartan Gunnarsson.

B deild - Útgáfud.: 2. desember 2010