Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 129/2013

Nr. 129/2013 25. janúar 2013
AUGLÝSING
um breytingu á reglum um sérstakar aðferðir og aðgerðir lögreglu við rannsókn sakamála, nr. 516 20. maí 2011.

1. gr.

1. tölul. 1. mgr. 3. gr. reglnanna orðist svo:

  1. Rökstuddur grunur sé um að verið sé að fremja alvarlegt brot, eða reynt verði að fremja alvarlegt brot, sem varðað getur að lágmarki átta ára fangelsi eða brot gegn 108. gr., 175. gr. a., 2., 3. og 4. mgr. 202. gr., 206. gr., 244. gr., 245. gr., 247. gr., 248. gr., 249. gr., 249. gr. a., 250. gr., 251. gr., 254. gr., 262. gr. eða 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 117. gr., 123. gr. og 124. gr., sbr. 146. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, 41. gr. a., samkeppnislaga nr. 44/2005 eða 4. mgr. 2. gr., sbr. 4. gr. eða 4. gr. a. og 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.

2. gr.

Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt heimild í 89. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 25. janúar 2013.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 12. febrúar 2013