1. gr. 3. tölul. 9. gr. verður svohljóðandi: Bólgueyðandi stungulyf sem ekki eru sterar (NSAID). Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er dýralækni, sem gert hefur þjónustusamning skv. 5. gr. reglugerðar nr. 353/2011 um aðbúnað og heilbrigði svína, heimilt að ávísa eiganda þess svínabús, sem samningurinn gildir fyrir, slíku lyfi til notkunar í vöðva í eftirfarandi tilvikum: til að draga úr verkjum eftir geldingu grísa og eftir klippingu skotta grísa, sbr. 3. mgr. 12. gr. reglugerðar nr. 353/2011 um aðbúnað og heilbrigði svína og bráðabirgðaákvæði við sömu reglugerð, enda hafi dýraeigandi leyfi Matvælastofnunar til þessa, við liðabólgu án sýkinga hjá svínum, og sem bólgueyðandi og hitalækkandi stuðningsmeðferð í tengslum við lungnabólgu og gothita (MMA (mastitis, metritis, agalactia)) hjá svínum ásamt viðeigandi sýklalyfjameðferð.
Þá er dýralækni einnig heimilt að ávísa dýraeiganda slíku lyfi við verkjum í júgri minkalæðu eftir got og á mjólkurskeiði þeirra.
2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr., sbr. 49. gr. lyfjalaga, nr. 93/1994, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Velferðarráðuneytinu, 22. október 2012. Guðbjartur Hannesson. Vilborg Ingólfsdóttir. |