1. gr. 2. málsl. 2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Við útreikning sérstakrar uppbótar skv. IV. kafla skal hvorki taka tillit til uppbóta á lífeyri, skv. 1. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 10. gr. laga um félagslega aðstoð, né eingreiðslna (orlofs- og desemberuppbóta) frá Tryggingastofnun ríkisins. 2. gr. Í stað „326.904 kr." í 2. mgr. 7. gr. kemur: 353.383 kr. 3. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr.: a. Í stað „184.140 kr." í 1. málsl. 2. mgr. 1. gr. kemur: 196.140 kr. b. Í stað „157.030 kr." í 2. málsl. 2. mgr. 1. gr. kemur: 169.030 kr. 4. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5. mgr. 9. gr., sbr. 14. gr., laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, sbr. einnig 70. gr. og 15. tölul. ákvæðis til bráðabirgða við lög nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og skulu hækkanir skv. 2. og 3. gr. gilda frá og með 1. júní 2011. Jafnframt falla úr gildi reglugerð nr. 516/2010, um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1052/2009, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri og reglugerð nr. 1007/2010, um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1052/2009, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri. Velferðarráðuneytinu, 6. júní 2011. Guðbjartur Hannesson. Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir. |