Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 300/2006

Nr. 300/2006 12. apríl 2006
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 522/2004, um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf, með síðari breytingum.

1. gr.

11. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

2. gr.

Orðin „og brunabótamati íbúðarinnar“ í 1. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar falla brott.

3. gr.

Við 2. mgr. 30. gr. reglugerðarinnar bætast orðin: að viðbættu fasteignamati lóðar.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 19. gr. og 29. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 12. apríl 2006.

Jón Kristjánsson.

Lárus Bollason.

B deild - Útgáfud.: 18. apríl 2006