1. gr. 4. ml. 1. gr. orðist svo: Skilagjald skal nema 14,02 kr. án virðisaukaskatts á hverja umbúðaeiningu. 2. gr. 2. gr. orðist svo: Umsýsluþóknun skal leggja til viðbótar skilagjaldi á hverja umbúðaeiningu úr stáli, gleri og plastefni og skal fjárhæð hennar án virðisaukaskatts vera 5,00 kr. á umbúðir úr stáli, 4,30 kr. á umbúðir úr gleri stærri en 500 ml, 3,10 kr. á umbúðir úr gleri 500 ml og minni, 2,55 kr. á umbúðir úr lituðu plastefni og 1,01 kr. á umbúðir úr ólituðu plastefni. 3. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt 4. gr. laga nr. 52/1989 um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur og öðlast gildi 1. janúar 2014. Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 20. desember 2013. F. h. r. Stefán Thors. Björgvin Valdimarsson. |