1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr.: 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Þegar um er að ræða rafrænan reikning, þ.e. reikning sem á uppruna sinn í rafrænu reikningakerfi skv. reglugerð nr. 505/2013, um rafræna reikninga, rafrænt bókhald, skeytamiðlun, skeytaþjónustu, geymslu rafrænna gagna og lágmarkskröfur til rafrænna reikninga- og bókhaldskerfa, skal reikningurinn uppfylla ákvæði III. kafla þeirrar reglugerðar. 6. málsl. 3. mgr. orðast svo: Þegar um er að ræða rafrænan reikning skal ákvæði um frumrit, samrit og eintak í réttri röð eða söluuppgjörsyfirlit teljast uppfyllt þegar farið er eftir ákvæðum III. kafla reglugerðar nr. 505/2013.
2. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr.: 3. málsl. 1. mgr. orðast svo: Frumrit kvittunar eða sölureiknings eða rafrænn reikningur skal liggja til grundvallar færslu á innskatti vegna innborgunar á viðskipti, sbr. 7. gr. 4. mgr. orðast svo: Ef seljandi gefur út rafrænan reikning og kaupandi er ekki með rafrænt bókhaldskerfi er prentað eintak rafræna reikningsins skv. III. kafla reglugerðar nr. 505/2013 innskattsskjal hans. Auk þeirra form- og efniskrafna sem gerðar eru í 1. mgr. skal á prentuðu eintaki rafræns reiknings koma fram að hann uppfylli kröfur reglugerðar nr. 505/2013. Í stað orðins „sölureiknings“ í 6. mgr. kemur: reiknings.
3. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 21. gr.: Í stað orðanna „rafræns sölureiknings áritað um að hann sé úr rafrænu bókhaldskerfi“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: rafræns reiknings áritað um að hann sé úr rafrænu reikningakerfi. 4. gr. 3. mgr. 32. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Um öryggisafrit rafræns bókhalds og rafrænna bókhaldsgagna fer skv. 11. gr. reglugerðar nr. 505/2013. 5. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 23. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt og öðlast þegar gildi. Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 14. júní 2013. F. h. r. Maríanna Jónasdóttir. Elín Árnadóttir. |